Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar 5. júlí 2026 08:00 Ég bý í samfélagi sem þótti ekki tiltökumál að keyra fram af brúninni í upphafi þessarar aldar. Samfélagi þar sem þjóðin öll fór á fyllirí í eltingaleik í kringum gullkálfinn og ekki var um annað talað í fermingarveislum en hvort þú hefðir keypt hlutabréf í þessu eða hinu fyrirtækinu. Allur almenningur var með dollaramerki í augum. Fyrirtækin í Kauphöll hækkuðu öll í verði um tugi prósenta á ári. Rekstur þeirra skipti engu máli – þau hækkuðu bara í verði sjálfvirkt. Og karlarnir voru í því að taka út auðinn sem þannig skapaðist – af því að fyrirtækin hækkuðu svo mikið í verði án þess að nokkur raunveruleg verðmætasköpun hefði átt sér stað. Margir gjaldmiðlar voru í notkun í samfélaginu á þessum tíma – íslenska krónan, íslenska verðtryggða krónan og svo var leyft að nota hina ýmsu erlenda gjaldmiðla líka. Þó að Alþingi hefði sett lög sem bönnuðu húsnæðiskaup einstaklinga í erlendum gjaldmiðli, var horft framhjá því og það leyft. „Fullveldið“ hafði ekki af því miklar áhyggjur frekar en síðar, þegar einstaklingarnir voru komnir í mikinn vanda. Þetta brjálæði náði hámarki árið 2007. Þá var rosalega gaman hjá öllum. Allt vaðandi í peningum og „frægt fólk á Íslandi“ vílaði ekki fyrir sér að panta þyrlur með erlendum skemmtikröftum í afmælisveislur, borða gull í veislum eða hvað það nú var annað sem fólki datt í hug á þessum tíma. Vorið 2008 kárnaði gamanið. Gjaldmiðillinn tók dýfu. Í einni svipan var allt breytt. Húsnæðislán sem hafði staðið í 9 milljónum hjá þeirri sem hér ritar tvöfaldaðist og breyttist í meira en 18 milljónir á einni nóttu. Þetta sama lán átti svo eftir að breytast í yfir 24 milljónir á haustmánuðum sama ár og þegar yfir lauk stóð það í 34.017.378 krónum árið 2013, þegar það var að lokum dæmt ólöglegt vegna forystu annarra um að fara í mál. Þá breyttist húsnæðislánið í 13 milljónir íslenskra króna og sú er þetta ritar fékk lífið aftur eftir 3ja ára baráttu við kerfi sem lét eins og allt sem gerðist hefði verið henni einni að kenna. „Fullveldið“ skipti sér ekki af þessu. Var skítsama um einstaklingana sem lentu í hamförunum og að 10.000 fjölskyldur misstu heimili sín. Eignarhaldsfélög hirtu heimilin og nú eru í þessu samfélagi fjöldi húsnæðisfélaga undir forystu manna sem tilheyrðu elítunni um árabil og eru komnir í harða baráttu gegn því að einstaklingarnir í þessu samfélagi fái að kynnast öðruvísi efnahagslífi en hér hefur tíðkast í meira en mannsaldur. Forsetinn var í forystu klappliðsins um árabil. Sá sem taldi Íslendinga (karla NB) mun hæfari en aðra menn, lét lítið fyrir sér fara meðan ósköpin dundu yfir. Þaðan var enga huggun að fá eða strokur fyrir „aumingjann“ – einstaklinginn eins og mig – sem aldrei hafði sýnt nokkurn einasta áhuga á að eignast peninga. Einstaklinginn sem var að reyna að finna út úr sínu lífi og sinna sinni vinnu af heilindum, í þágu þeirra sem voru á kafi í gullæðinu allan tímann. Þessi forseti lét ekki til sín taka aftur fyrr en að því kom að Íslendingar þyrftu að standa við skuldbindingar sínar. Íslendingar stóðu frammi fyrir því að þurfa að standa fyrir ábyrgð sinni á því hvað þeir voru að gera á þessum árum gullæðisins. Þá reyndist hann besti forystumaðurinn í ábyrgðarleysinu. Gegn þeim sem áttu sína lífeyrissjóði í Icesave. Þá stóð hann keikur og enn þann dag í dag ber hann sér á brjóst fyrir að eiga heiðurinn af því að hafa tryggt ábyrgðarleysi Íslendinga á því að mega fara illa með aðra án þess að bera á því nokkra ábyrgð. Ætli standi ekki til á morgun að halda ræðu um að hann hafi bjargað Íslendingum frá „vondum útlendingum“ í Evrópusambandinu. Gömlu fólki, öryrkjum og öðru „venjulegu fólki“ sem átti allt sitt í „Icesave“ – hafði treyst Íslendingum fyrir öllu sínu. Íslendingum sem var skítsama um þeirra hag og hugsaði ekki um aðra en sjálfa sig. Það megið þið vita, nei-sinnar, að þið hefðuð ekki getað valið ykkur verri forystumenn. Elíta hefur enga reynslu af því hvernig það er að berjast við að lifa í þessu samfélagi. „Fullveldi“ hefur í mínum eyrum nákvæmlega ekkert gildi. „Fullveldi“ sem fer með fólk eins og farið var með fólk á fyrsta og öðrum áratug þessarar aldar á ekki skilið að vera við haldið – ekki að óbreyttu. Það fer beinlínis um mig kjánahrollur að menn leyfi sér að láta eins og Danmörk, Þýskaland, Frakkland, Svíþjóð, Holland, Finnland, Austurríki, Írland, Malta, Luxemburg, og öll þessu lönd séu ekki „fullvalda“! Hversu langt getur íslenskur hroki eiginlega gengið? Það hefur aldrei nokkurn tíma hvarflað að mér að möguleg aðild að Evrópusambandinu sé töfralausn. Ég trúi ekki á töfralausnir í samfélagi þjóða. Ég trúi ekki á „eitt rétt svar“ við því hvort að við eigum að skipta um gjaldmiðil eða ekki. Ég trúi ekki á „eitt rétt svar“ við nokkurri þeirra spurninga sem við stöndum frammi fyrir yfirleitt. Ég held að samfélög og umræða um samfélög sé heimspekilegt viðfangsefni. Allt er í heiminum hverfult. Ég er með skilaboð til þeirra sem halda fundinn á morgun: Ég krefst þess að fá að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið! Ég, sem íslenskur borgari, krefst þess að fá að vita hvaða möguleika við eigum innan þessa samstarfs. Það er hófsöm krafa og þið sem eigið peningana á Íslandi skuldið mér að verða við þeirri kröfu. Höfundur starfaði í milliríkjaviðskiptum í 30 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun