Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar 6. júlí 2026 18:03 Sigvaldalitirnir; gulur, djúpblár og hvítur, þetta eru litir sem eru meira en skraut. Þeir eru sjónræn undirskrift. Maður sér litina og hugsar: þetta er Sigvaldahús. Formið er vísbending en litapallettan staðfestir höfundareinkennin. Sigvaldi Thordarson. Slík einkenni minna okkur á að arkitektúr og borgarskipulag snúast ekki aðeins um húsform, fyrirkomulag byggðar, hlutföll, skala, fagurfræði eða virkni. Litir, áferð, birta og minni eru ekki síður mikilvægir þættir. Gamli bærinn í Gdańsk er gott dæmi um þetta á stærri skala. Þar verður staðarandinn ekki til í einni byggingu, heldur í samspili heildarinnar: mjórra húsa, fjölbreyttra framhliða, margvíslegra lita, skýrra göturýma og sterkrar tilfinningar fyrir röð og hrynjanda. Litirnir blása lífi í götumyndina. Formin gefa henni takt. Göturýmin halda henni saman. Styrkleiki staðarins felst í þessu samspili, þ.e. fjölbreyttri byggð sem verður aldrei tilviljanakennd, ríkulegum smáatriðum sem raska ekki heildinni og svipmiklum en hljóðlátum karakter. Í borgarskipulagi er oft horft til götureita, landnotkunar og þéttleika byggðar. En litir og efniskennd hafa ekki síður áhrif á það hvernig fólk upplifir staði. Borgir markast af línum en þær skerpast í ljósi, litum og staðaranda. Kannski er litur eitt vanmetnasta verkfæri borgarskipulagsins. Höfundur er skipulagsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skipulagsmál Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Sigvaldalitirnir; gulur, djúpblár og hvítur, þetta eru litir sem eru meira en skraut. Þeir eru sjónræn undirskrift. Maður sér litina og hugsar: þetta er Sigvaldahús. Formið er vísbending en litapallettan staðfestir höfundareinkennin. Sigvaldi Thordarson. Slík einkenni minna okkur á að arkitektúr og borgarskipulag snúast ekki aðeins um húsform, fyrirkomulag byggðar, hlutföll, skala, fagurfræði eða virkni. Litir, áferð, birta og minni eru ekki síður mikilvægir þættir. Gamli bærinn í Gdańsk er gott dæmi um þetta á stærri skala. Þar verður staðarandinn ekki til í einni byggingu, heldur í samspili heildarinnar: mjórra húsa, fjölbreyttra framhliða, margvíslegra lita, skýrra göturýma og sterkrar tilfinningar fyrir röð og hrynjanda. Litirnir blása lífi í götumyndina. Formin gefa henni takt. Göturýmin halda henni saman. Styrkleiki staðarins felst í þessu samspili, þ.e. fjölbreyttri byggð sem verður aldrei tilviljanakennd, ríkulegum smáatriðum sem raska ekki heildinni og svipmiklum en hljóðlátum karakter. Í borgarskipulagi er oft horft til götureita, landnotkunar og þéttleika byggðar. En litir og efniskennd hafa ekki síður áhrif á það hvernig fólk upplifir staði. Borgir markast af línum en þær skerpast í ljósi, litum og staðaranda. Kannski er litur eitt vanmetnasta verkfæri borgarskipulagsins. Höfundur er skipulagsfræðingur.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar