Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar 7. júlí 2026 08:30 Í grein sem birtist hér á Vísi í gær, eftir undirritaðan, var rakið hvernig þeir Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar Arnórsson, tveir helstu arkitektar íslenska fullveldisins árið 1918, skildu fullveldishugtakið. Niðurstaða þeirra var skýr: Alþjóðlegar skuldbindingar og jafnvel framsal tiltekinna verkefna til annarra ríkja jafngiltu ekki sjálfkrafa skerðingu fullveldis. Þvert á móti væri það einmitt einkenni fullvalda ríkis að geta tekið slíkar ákvarðanir sjálft. Ólafur Jóhannesson og þróun fullveldishugtaksins Þessi skilningur hvarf ekki með Bjarna og Einari. Hann lifði áfram og birtist með skýrum hætti í ræðu sem Ólafur Jóhannesson, þá prófessor og einn áhrifamesti sérfræðingur í stjórnskipunarrétti hérlendis (og síðar forsætisráðherra), flutti árið 1962 undir heitinu Stjórnarskráin og þátttaka Íslands í alþjóðastofnunum. Erindið var síðar birt í 12. árgangi Tímarits lögfræðinga. Þar fjallar Ólafur um spurningu sem hefur aftur orðið áleitin í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst: Getur aðild að alþjóðastofnun eða alþjóðlegar skuldbindingar leitt til þess að ríki teljist ekki lengur fullvalda? Sú stofnun sem hann hafði í huga var Efnahagsbandalag Evrópu, forveri Evrópusambandsins. Þeirri spurningu svaraði Ólafur með eftirfarandi hætti: „Næst vík ég með örfáum orðum að þeirri spurningu, hvort skuldbindingar gagnvart alþjóðastofnun geti leitt til þess, að landið verði ekki lengur talið fullvalda, þ.e.a.s. ekki lengur talið fullgildur þjóðréttaraðili. Þeirri spurningu verður almennt að svara neitandi. Það er að vísu ljóst af því, sem hér hefur verið sagt, að talsverðar fullveldistakmarkanir kunna að fylgja aðild að alþjóðastofnun. En fullveldishugtakið er afstætt. Það lagar sig eftir breyttum viðhorfum og þörfum á hverjum tíma. Fullveldistakmarkanir þær, sem t.d. leiða af þátttöku í Efnahagsbandalaginu, hefðu sennilega áður fyrr verið taldar ósamrýmanlegar óskoruðu ríkisfullveldi. En sjálfsagt kemur engum til hugar að halda því fram, að aðildarríki Efnahagsbandalagsins, Frakkland, Ítalía, Belgía o.s.frv. séu ekki eftir sem áður fullvalda ríki. Þau eru auðvitað eftir sem áður fullgildir þjóðréttaraðilar. Skuldbindingar ríkja gagnvart alþjóðastofnun munu því oftast nær engu skipta um formlegt fullveldi ríkis. Gildir það almennt jafnt, þó að alþjóðastofnun hafi verið fengið í hendur vald, sem stjórnlögum samkvæmt á að vera hjá handhöfum ríkisvalds. Sú regla er þó sjálfsagt ekki undantekningarlaus. En þátttaka í alþjóðastofnunum, jafnvel þótt valdamiklar séu, gefur almennt eigi tilefni til heilabrota um það, hvort hún sé samrýmanleg fullveldi aðildarríkjanna. Hitt er spurningin, hvort hún sé samrýmanleg stjórnlögum hvers ríkis. Þær kvaðir, sem fullvalda ríki almennt telja sér fært að undirgangast á hverjum tíma gagnvart alþjóðastofnunum, myndu eigi heldur taldar ósamrýmanlegar fullveldi Íslands. Það myndi þrátt fyrir þvílíkar fullveldistakmarkanir talið fullgildur þjóðréttaraðili. Hitt er augljóst, og þarf raunar ekki að taka fram að milliríkjasamningur getur haft í för með sér slíkar fullveldisskerðingar, [að] samningsríki verði ekki lengur talið fullvalda.“ Þessi nálgun er athyglisverð vegna þess að hún endurómar nær orðrétt þann skilning sem Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar Arnórsson settu fram rúmum fjórum áratugum áður. Það þýðir auðvitað ekki að umræða um aðild að Evrópusambandinu sé þar með útkljáð. Langt því frá. Það má deila um hvort aðild sé skynsamleg eða óskynsamleg, hvort hún þjóni íslenskum hagsmunum eða ekki og hvort aðild samrýmist íslensku stjórnarskránni (sem hún að mati undirritaðs gerir ekki eins og hún er í dag). Allt eru þetta mikilvægar og eðlilegar spurningar. Mikilvægur greinarmunur í umræðunni En ef marka má málflutning Bjarna Jónssonar frá Vogi, Einars Arnórssonar og síðar Ólafs Jóhannessonar verður vart haldið fram að alþjóðlegar skuldbindingar eða framsal verkefna jafngildi sjálfkrafa skerðingu fullveldis. Þvert á móti hefur löngum verið litið svo á að það sé einmitt birtingarmynd fullveldis að ríki geti, af eigin vilja og samkvæmt eigin stjórnskipunarreglum, ákveðið að taka á sig alþjóðlegar skuldbindingar. Þegar þjóðin ræðir um fullveldi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst er því ástæða til að líta ekki einvörðungu á pólitískar yfirlýsingar samtímans heldur einnig það sem áhrifamenn tuttugustu aldarinnar töldu felast í hugtakinu. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Bjarni Már Magnússon Mest lesið Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun