Britney á stóra skjáinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. júlí 2026 17:04 Britney Spears mun birtast á stóra skjánum einhvern tímann á næstu árum ef allt gengur eftir. Getty Ævisöguleg kvikmynd um poppstjörnuna Britney Spears færist nær því að verða að veruleika. Aðlögunin á sjálfsævisögu Spears að stóra skjánum hefur verið í lausu lofti síðan 2024 en nú herma fregnir að búið sé að ráða handritshöfundinn Elizabeth Meriwether í verkið. Hún bætist í framleiðsluhópinn með leikstjóranum Jon M. Chu og framleiðandanum Marc Platt.
Bransamiðillinn Page Six Hollywood greindi frá fregnum af ráðningu Meriwether í morgun og hafa aðrir Hollywood-miðlar síðan fjallað um málið. Sjálfsævisagan The Woman in Me kom út árið 2023 og varð metsölubók um heim allan. Spears rekur í bókinni ævi sína frá því hún varð poppstirni sem táningur og alveg fram að því að hún fékk opinbert taugaáfall árið 2007 sem endaði með því að faðir hennar, Jamie Spears, fékk forræði yfir söngkonunni. Sjá einnig: Britney greinir frá því hvers vegna hún snoðaði sig Kvikmyndaverið Universal Pictures vann uppboð á réttinum að bókinni árið 2024. Leikstjórinn Jon M. Chu, sem er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt Now You See Me 2 (2016), Crazy Rich Asians (2018) og Wicked (2024), var í kjölfarið ráðinn til að leikstýra myndinni og Marc Platt til að framleiða hana. Lítið hefur heyrst af aðlöguninni síðan þá og var á tímabili talið að ekkert yrði úr myndinni vegna persónulegra vandræða Britney á síðustu árum. Velgengni ævisögumyndarinnar Michael (2026) um popparann Michael Jackson virðist hafa endurvakið áætlanirnar og því hefur handritshöfundurinn Liz Meriwether verið ráðinn í verkið Meriwether á fimmtán ára feril að baki í Hollywood og er höfundur gamanþáttanna New Girl (2011-18), ævisögulegu þáttanna The Dropout (2022), gamandramaþáttanna Dying for Sex (2025) og rómantísku gamanmyndarinnar No Strings Attached (2011). Platt og Chu hafa þegar skrifað drög að myndinni og mun Meriwether sjá um að breyta þeim í fullmótað handrit. Universal hefur ekki tjáð sig um fregnirnar af ráðningu Meriwether.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Sjálfræðisbarátta Britney Spears Tengdar fréttir Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Talsmaður Britney Spears segir lýsingar í götupressunni, um að poppstjarnan hafi á miðvikudagskvöld ógnað veitingastaðargestum með hnífi, öskrað og gelt, vera verulega ýktar. Hið rétta sé að Britney hafi þurft að skera hamborgara sinn til helminga og sagt borðfélögum leikræna sögu af hundi sínum. 15. maí 2026 10:37 Britney farin í meðferð Britney Spears hefur ákveðið að fara í meðferð eftir að hafa verið handtekin vegna gruns um að keyra undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna í síðasta mánuði. 13. apríl 2026 10:11 Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Bandaríska poppstjarnan Britney Spears var handtekin í nótt á þjóðvegi í suðurhluta Kaliforníu. Hún var í haldi yfir nótt en sleppt í morgun og hefur verið gert að mæta fyrir dómara 4. maí vegna málsins. 5. mars 2026 16:13 Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira
Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Talsmaður Britney Spears segir lýsingar í götupressunni, um að poppstjarnan hafi á miðvikudagskvöld ógnað veitingastaðargestum með hnífi, öskrað og gelt, vera verulega ýktar. Hið rétta sé að Britney hafi þurft að skera hamborgara sinn til helminga og sagt borðfélögum leikræna sögu af hundi sínum. 15. maí 2026 10:37
Britney farin í meðferð Britney Spears hefur ákveðið að fara í meðferð eftir að hafa verið handtekin vegna gruns um að keyra undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna í síðasta mánuði. 13. apríl 2026 10:11
Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Bandaríska poppstjarnan Britney Spears var handtekin í nótt á þjóðvegi í suðurhluta Kaliforníu. Hún var í haldi yfir nótt en sleppt í morgun og hefur verið gert að mæta fyrir dómara 4. maí vegna málsins. 5. mars 2026 16:13