Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar 10. júlí 2026 10:01 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skrifaði á Facebook 9. júlí að ekki væri skynsamlegt að berjast gegn samningi sem ekki hefði enn verið gerður og bætti síðan við: „Það borgar sig hins vegar alltaf að skoða kostina.“ Ég er sammála því. En einmitt þess vegna vaknar óhjákvæmilega spurningin: Hvers vegna er þá verið að gefa íslensku þjóðinni svo lítinn tíma til að skoða kostina? Enginn veit hvernig hugsanlegur aðildarsamningur Íslands að Evrópusambandinu myndi líta út. Það er eðli samningaviðræðna. En það þýðir ekki að við vitum ekkert um það ferli sem þjóðin er nú beðin um að samþykkja. Við höfum áður farið í aðildarviðræður og fyrir liggja bæði samningsrammi Íslands og fjölmörg opinber gögn frá Evrópusambandinu um hvernig aðildarferlið er skipulagt og hvert markmið þess er. Þjóðin er því ekki aðeins að taka afstöðu til þess að fá frekari upplýsingar heldur einnig til þess hvort hefja eigi að nýju umfangsmikið aðildarferli. Einmitt þess vegna skipta tímamörkin máli. Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, hefur sjálf bent á að ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu sé sambærileg að mikilvægi við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu árið 1949 og varnarsamninginn við Bandaríkin árið 1951. Ef það mat er rétt þá hlýtur þjóðin að eiga rétt á yfirvegaðri og vandaðri umræðu. Í stað þess virðist ríkisstjórnin ætla að láta þessa umræðu fara fram á örfáum vikum yfir hásumarið. Það er erfitt að sjá hvernig það samrýmist þeim orðum ráðherrans að það borgi sig að skoða kostina. Því stærra sem málið er, þeim mun ríkari ástæða er til að vanda umræðuna. En til þess að þjóð geti raunverulega skoðað kostina þarf hún ekki aðeins að fá að kjósa. Hún þarf líka að fá nægan tíma til að kynna sér málið, ræða það og ígrunda afleiðingar þess. Það er sú umræða sem ég tel að Íslendingar eigi skilið áður en þeir ganga að kjörborðinu. Ég tek því undir með dómsmálaráðherra um eitt: Það borgar sig að skoða kostina. En til þess þarf þjóðin fyrst að fá raunverulegt tækifæri til þess. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar