En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar 11. júlí 2026 22:00 Sumt hefur verið sagt og annað ofsagt um Jón og séra Jón í tímans rás og sitthvað í sama dúr hefur flogið á milli manna: „Stelir þú litlu og standirðu lágt í steininn settur verður, en stelirðu miklu og standirðu hátt í stjórnarráðið ferðu.“ Ég ætla ekki að halda því fram að stórbófar Íslands eigi greiða leið til metorða í samfélaginu umfram aðra, hvað þá að komast í Stjórnarráðið. Hitt er ljóst að þeir eru meðhöndlaðir öðru vísi en þeir sem gerast sekir um smáglæpi. Skólabókardæmi þar um er upplýsandi umfjöllun á vísi.is. Hún gefur innsýn í samsekt stjórnvalda og lögreglu með lögbrjótum sem í eiginhagsmunaskyni vinna að því að eyðileggja lögboðna verslun með áfengi og þar með lýðheilsustefnu sem Alþingi hefur mótað og nýtur stuðnings heilbrigðisyfirvalda í landinu og samtaka sem sinna lýðheilsumálum. Lögreglan lýsir því beinlínis yfir við fjölmiðilinn að hún treysti sér ekki til þess að stöðva augljós lögbrot, svo mikil séu þau! Lögbrotin séu augljós en glæpurinn orðinn of umfangsmikill til að taka á honum. Þannig heldur lögreglan hlífiskildi yfir stórtækum lögbrjótum. Breiðfylking heilbrigðisstétta, forvarnar- og lýðheilsusamtök hafa árum saman kvartað yfir meðvirkni yfirvalda og reynt að vara löggjafann við því sem augljóst ætti að vera hverju barni, að ríkisstjórnin gangi beinlínis erinda lögbrjótanna, letji lögregluna til að sinna lögboðnu hlutverki sínu svo ólöglega starfsemin fá fest sig í sessi.Þannig molnar undar réttarríkinu og þannig er grafið undan trúverðugleika fulltrúalýðræðisins. Hvað á að kalla þetta? Mér koma aðeins í hug hugtök sem ég læt ónefnd en lesendur hugsi sitt. Höfundur er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Ögmundur Jónasson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Sumt hefur verið sagt og annað ofsagt um Jón og séra Jón í tímans rás og sitthvað í sama dúr hefur flogið á milli manna: „Stelir þú litlu og standirðu lágt í steininn settur verður, en stelirðu miklu og standirðu hátt í stjórnarráðið ferðu.“ Ég ætla ekki að halda því fram að stórbófar Íslands eigi greiða leið til metorða í samfélaginu umfram aðra, hvað þá að komast í Stjórnarráðið. Hitt er ljóst að þeir eru meðhöndlaðir öðru vísi en þeir sem gerast sekir um smáglæpi. Skólabókardæmi þar um er upplýsandi umfjöllun á vísi.is. Hún gefur innsýn í samsekt stjórnvalda og lögreglu með lögbrjótum sem í eiginhagsmunaskyni vinna að því að eyðileggja lögboðna verslun með áfengi og þar með lýðheilsustefnu sem Alþingi hefur mótað og nýtur stuðnings heilbrigðisyfirvalda í landinu og samtaka sem sinna lýðheilsumálum. Lögreglan lýsir því beinlínis yfir við fjölmiðilinn að hún treysti sér ekki til þess að stöðva augljós lögbrot, svo mikil séu þau! Lögbrotin séu augljós en glæpurinn orðinn of umfangsmikill til að taka á honum. Þannig heldur lögreglan hlífiskildi yfir stórtækum lögbrjótum. Breiðfylking heilbrigðisstétta, forvarnar- og lýðheilsusamtök hafa árum saman kvartað yfir meðvirkni yfirvalda og reynt að vara löggjafann við því sem augljóst ætti að vera hverju barni, að ríkisstjórnin gangi beinlínis erinda lögbrjótanna, letji lögregluna til að sinna lögboðnu hlutverki sínu svo ólöglega starfsemin fá fest sig í sessi.Þannig molnar undar réttarríkinu og þannig er grafið undan trúverðugleika fulltrúalýðræðisins. Hvað á að kalla þetta? Mér koma aðeins í hug hugtök sem ég læt ónefnd en lesendur hugsi sitt. Höfundur er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar