Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar 14. júlí 2026 16:31 Ég er mikill Evrópusinni og hef verið stuðningsmaður ESB aðildar Íslands í liðlega 30 ár út frá hugsjón. Ekki krónum og aurum. En það hjálpar til. Það er ekki auðvelt að vera einlægur stuðningsmaður ESB á Íslandi. Maður fer ekkert hátt með það. Við Íslendingar erum stolt þjóð en við erum líka hrædd þjóð. Sagan segir okkur það. Hvar værum við án NATO, EFTA, EES og bjórsins? Þegar Ísland gekk í NATO árið 1949 var mikil andstaða við aðildina. Þingið samþykkti hana en þjóðin var klofin. Það voru óeirðir. Ef við hefðum ekki NATO hvar værum við stödd í dag? Þegar þjóðin varð aðili að EFTA 1970 var líka stór hópur á móti aðild. Ef við hefðum ekki EFTA hvar værum við stödd í dag? Ef þjóðin hefði greitt atkvæði um EES samninginn 1994 er næsta víst að hún hefði hafnað honum. Ef við hefðum ekki EES hvar værum við stödd í dag? Þegar bjórinn var leyfður 1. mars 1989 var mikil andstaða á þingi við þá ákvörðun. Þar fóru fremstir í flokki andstæðingar erlendra áhrifa. Ef við hefðum ekki bjórinn í dag hvar værum við stödd í dag? Andstæðingar í þessum fjórum málum eiga merkilega nokkuð margt sameiginlegt. Óttinn við erlend áhrif trónir þar efst. Hrædda þjóðin stígur alltaf fram. Ég gæti líka nefnt litasjónvarpið en af tillitssemi við fólk sem var á móti því læt ég það vera. ESB er akkerið sem þjóðin þarf á umbrotatímum Þessi hrædda þjóð á sér sterka talsmenn sem margir hverjir (eða forverar) höfðu rangt fyrir sér í öllum tilvikum. Einn úr þeim hópi sem var á móti EFTA, EES og bjórnum er eitt helsta átrúnaðargoð NEI sinna í dag. Hefði hann haft tök á að vera á móti NATO er öruggt að hann hefði barist gegn þeirri aðild. Íslenska þjóðin er ung. Ungri þjóð, sem hefur vegnað vel, fylgir kokhreysti. Við teljum okkur ekki þurfa á stærri bróður að halda. Megin ástæðan fyrir því að okkur hefur vegnað vel er alþjóðakerfið og við höfum verið réttum megin innan kerfisins. En óbreytt staða er ekki ávísun á áframhaldandi vegsæld. Við höfum ekki upplifað stríð og ófrið sem meginlandið hefur mátt þola og gerir enn. Höfum hugfast að ESB er svo miklu meira en bara gjaldmiðill og efnahagssamstarf. ESB varð til út frá hugsjón um frið í álfunni. Og þannig vill ESB vera áfram. Ekki veitir af á þessum umrótatímum með ógnina úr vestri. Stórhættuleg þróun er í gangi víða í Evrópu vegna uppgangs fasískra afla og stjórnvöldum í Bandaríkjunum er engan veginn treystandi. Þau hafa þróast óhugnanlega hratt í átt að alræðisríki með einum sterkum leiðtoga, ásælni í nágrannaríki og gerræðislegum ákvörðunum sem hafa lamað alþjóðasamvinnu. Ég hef óbilandi trú á grundvallarhugsjónum ESB og það er grundvöllur tilveru okkar og komandi kynslóða. Að þessar þjóðir standi saman. Og þar á Ísland að vera og leggja sitt af mörkum sem friðelskandi lýðræðisþjóð. Óþolandi frændinn er líka í ESB Það skal viðurkennt að ESB er skrímsli þegar kemur að regluverki, seinagangi og alls kyns leiðindum en ESB er fjölskylda og þar viðgangast alls kyns leiðindi. Það er ekki til sú fjölskylda sem á ekki leiðinlega frændur, þar sem upp kemur misklíð og fólk rífst. Fullveldi Íslands er ekki ógnað með ESB aðild. Fullveldi smáríkja er ekki tryggt með því að einangra sig. Við eigum að vera fullir þátttakendur í evrópsku fjölskyldunni og ég vona að ég muni upplifa þann dag fyrir börnin mín og barnabörn. Ég er 57 ára gamall og átta mig á að ESB aðild mun ekki gjörbreyta mínu lífi en hún snýst um mín börn og barnabörn. Hvernig getur fólk á mínum aldri og eldra neitað framtíðarkynslóðum um þann sjálfsagða kost að vita hvað gæti komið úr aðildarviðræðum? Ef við segjum NEI þann 29. ágúst þá verður ESB aðild út af borðinu um ókomna tíð. Er það sanngjarnt að ræna framtíðarkynslóðum möguleika á betra lífi, kjörum, réttindum og hugsjón um frið? Kjósum því JÁ þann 29. ágúst. Fyrir börnin okkar. Höfundur er stjórnmálafræðingur, faðir og afi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar