Golf

„Er það ekki full­kominn dagur? Golf og fót­bolti“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þorsteinn Hallgrímsson mun meðal annarra lýsa Opna mótinu á Sýn um helgina.
Þorsteinn Hallgrímsson mun meðal annarra lýsa Opna mótinu á Sýn um helgina. Vísir/Sigurjón

Mikil spenna er meðal golfáhugamanna fyrir Opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer fram í 154. sinn um helgina og hefst raunar snemma í fyrramálið. Margra augu eru á Rory McIlroy, að venju.

Opna mótið í golfi er hafið. Bein útsending stendur yfir frá klukkan 5:30 til 19:40 á Sýn Sport í dag og á morgun.

Opna mótið er elsta risamót heims, enda farið árlega fram, með örfáum undantekningum frá árinu 1860. Mótið er iðulega spilað á erfiðum völlum á Bretlandseyjum og veðrið á til að spila stóra rullu, en ekki er víst að svo verði í ár.

„Aðstæður líta eiginlega of vel út fyrir okkur. Spáin er góð, það spáir um 20 gráðum og fjórum til fimm metrum á sekúndu. Það sem kemur á móti er að það er alltaf spilað á strandarvöllum,“ segir fyrrverandi Íslandsmeistarinn Þorsteinn Hallgrímsson í Sportpakkanum á Sýn.

„Völlurinn, Royal Birkdale-völlurinn, sem er rétt norður af Liverpool hefur þornað svolítið mikið upp. Leikmenn hafa talað um að hann breytist og erfiðleikastuðullinn verði þannig að það er erfiðara að stöðva boltann á flötunum og hitta brautir og annað.“

Er það ávallt Rory McIlroy sem er mest rætt um fyrir svona mót?

„Já, Rory McIlroy og Scottie Scheffler. En núna er mikið talað um Tommy Fleetwood. Hann býr þarna á svæðinu, er heimamaður. Það er mikill spenningur fyrir því,“ segir Þorsteinn. Viðtalið var tekið upp í gær, fyrir leik Englands við Argentínu, en þá lifði enn von Englendinga um heimsmeistaratitil í fótbolta, líkt og fyrir hönd Fleetwood.

Tommy Fleetwood er heimamaður sem býr í nánd við Royal Birkdale-völlinn og gæti látið til sín taka.Kevin C. Cox/Getty Images

„Englendingarnir eins og við vitum, vonast eftir sigri á HM, þeir eru nú ekki komnir í úrslitaleikinn, á sunnudag og líka að Englendingur sigri. Það hefur ekki Englendingur sigrað á Opna mótinu síðan 1992, þegar leikið er á Englandi.“

Veðurspáin slík að Íslendingar liggi við skjáinn

Þorsteinn segir ekki hættu á því að Opna mótið falli í skuggann á HM-fári Englendinga sem höfðu vonast eftir sæti í úrslitaleik HM á sunnudag. Mótinu ljúki fyrir úrslitaleikinn milli Argentínu og Spánar á sunnudagskvöldið.

„Er það ekki fullkominn dagur. Golf og fótbolti.“

Þorsteinn mun vera hluti af lýsendateymi Sýnar af mótinu sem hófst snemma, klukkan hálf sex í morgun og aftur í fyrramálið.

Golfáhugamenn eru því hvattir til að fara snemma að sofa.

„Já, ég hvet til þess. Og veðurspáin hérna sunnanlands bendir til þess að það verði mjög margir sem fylgjast með golfinu um helgina.“

Bein útsending frá Opna mótinu er hafin á Sýn Sport og mun standa yfir í allan dag, til klukkan 19:40 í kvöld.

Einnig er mótið í beinni á morgun, frá klukkan 5:30 til 19:40 áður en skorið verður niður fyrir seinni tvo hringina um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×