Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 17. júlí 2026 07:02 Fyrr í vikunni birtist grein á Vísi eftir Berglindi Guðmundsdóttur, einn stofnanda samatakanna SJÁ sem vilja að samþykkt verði í þjóðaratkvæðinu í lok ágúst að hefja inngöngu í Evrópusambandið, þar sem hún spurði í fyrirsögn hvort við gætum gert betur fyrir íslenzk heimili. Sagði hún helztu ástæðuna fyrir því að hún teldi að segja ætti já í atkvæðagreiðslunni og fá samning um inngöngu í sambandið á borðið vera þá að fá upplýsingar um það hvaða áhrif hann „gæti haft á vexti, verðbólgu og lífskjör.“ „Nú stendur þjóðin frammi fyrir því að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi á ný viðræður við Evrópusambandið. Að mínu mati ætti sú umræða fyrst og fremst að snúast um hvaða áhrif hugsanlegur samningur gæti haft á íslensk heimili. Einmitt þess vegna finnst mér eðlilegt að vilja sjá samninginn áður en þjóðin tekur endanlega afstöðu. Aðeins þannig getum við byggt umræðuna á raunverulegum forsendum og metið með upplýstum hætti hvaða áhrif samningurinn gæti haft á vexti, verðbólgu og lífskjör.“ Vandamálið við þennan málflutning Berglindar, og fleiri Evrópusambandssinna og þar á meðal ráðherra í ríkisstjórninni eins og samflokksmanna hennar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, er einkum sá að ekkert mun eðli málsins samkvæmt koma fram um það hvaða vextir eða verðbólga verði á Íslandi í framtíðinni gangi landið í Evrópusambandið og taki í framhaldinu upp evruna sem gjaldmiðil sinn. Væntanlega segir það sig sjálft að ekkert er hægt að fullyrða um það hvernig þau mál muni þróast í framtíðinni, hvort sem er innan Evrópusambandsins eða utan þess. Hvað þá að hægt sé að binda slíkt í samninga. Helzta ástæða Berglindar og fleiri í forystusveit Evrópusambandssinna fyrir því að samþykkt verði að hefja inngöngu í sambandið í ágúst, með tilheyrandi fullri aðlögun að því sem er hluti af því að ganga þar inn, er þannig algerlega úr lausu lofti gripin og stenzt alls enga skoðun. Með slíkum málflutningi er þannig ljóslega ekki verið að draga upp rétta mynd af stöðunni. Framgangan er alvarlegri í ljósi þess að með henni er í pólitískum tilgangi verið að gera út á erfiðleika fólks vegna verðbólgunnar og hárra vaxta sem eru einkum afleiðing snarhækkað húsnæðisverðs aðallega vegna ónógs lóðaframboðs. Við getum sannarlega gert betur fyrir heimilin. Til dæmis með úthlutun lóða og fyrir íbúðir sem fólk vill. En líka með því að sleppa því að reyna að blekkja heimilisfólkið. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar