Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2026 23:15 Mynd af Pele frá HM 1958 og ofan á henni má sjá gullverðlaun Pelé frá úrslitaleik heimsmeistaramótsins 1958, þegar þau voru til sýnis. Getty/Yui Mok Treyjan sem Pelé klæddist í 5-2 sigri Brasilíu á gestgjöfunum Svíþjóð í úrslitaleik heimsmeistaramóts FIFA 1958 var seld á 4,88 milljónir dala hjá Sotheby's á fimmtudag en það eru 617 milljónir íslenskra króna.
Það er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir safngrip tengdan Pelé og slær metið frá 2022 þegar nýliðaspjald Pelé frá Alifabologet frá 1958 var selt í einkasölu fyrir 1,33 milljónir dala. Það var fyrsta fótboltaspjaldið sem seldist á yfir milljón dali. CAMISA HISTÓRICA DE PELÉ É LEILOADA POR QUASE R$ 25 MILHÕES! 🤯🇧🇷A camisa usada por Pelé na vitória do Brasil por 5 a 2 sobre a Suécia, na final da Copa do Mundo de 1958, foi leiloada nesta quinta-feira (16) por US$ 4,88 milhões (cerca de R$ 25 milhões).O uniforme é uma das… pic.twitter.com/9Jqfph1rE8— SportsCenter Brasil (@SportsCenterBR) July 16, 2026 Treyjan var notuð af hinum þá sautján ára gamla Pelé – sem er enn yngsti leikmaðurinn til að spila og skora í úrslitaleik heimsmeistaramóts FIFA eftir að hann skoraði á 55. og 90. mínútu. Hann gaf liðsfélaga sínum, Dida, treyjuna eftir úrslitaleikinn 1958, sem gaf hana til Museu dos Esportes-safnsins í Rio de Janeiro. Safnið setti treyjuna á uppboð hjá Christie's árið 2004, þar sem hún seldist síðast á 105.600 dali eða 13,3 milljónir króna. Le maillot porté par Pelé lors de la finale de la Coupe du monde 1958 vendu plus de 4 millions d'euros aux enchères➡️ https://t.co/XVq8iIQDEU pic.twitter.com/o5CuHOysz1— L'Équipe (@lequipe) July 16, 2026 „Þessi treyja er ekki aðeins varanleg minning um eitt mikilvægasta augnablik fótboltasögunnar, heldur tengist hún fyrst og fremst því augnabliki sem gerði Pelé að alþjóðlegri íþróttastjörnu,“ sagði Brendan Hawkes, yfirmaður íþróttastefnumótunar og þróunar hjá Sotheby's-uppboðinu, í yfirlýsingu. Treyjan, sem var notuð þegar Brasilía vann sinn fyrsta af fimm heimsmeistaratitlum FIFA, sem er met, er nú næstdýrasta fótboltatreyja allra tíma á eftir „hönd guðs“-treyju Diego Maradona frá heimsmeistaramóti FIFA 1986, sem seldist á 9,28 milljónir dala eða meira en 1,1 milljarð króna. The shirt worn by Pele in Brazil's 1958 World Cup final victory has sold for $4.9m (£3.6m), becoming the second most valuable football jersey ever sold at auction 💰Only Diego Maradona's 'Hand of God' shirt has sold for more, fetching £7.1m in 2022. pic.twitter.com/dXY53SJZpP— BBC Sport (@BBCSport) July 16, 2026
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Sjá meira