Golf

Púttin að leika Scheffler grátt

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Scottie Scheffler stefnir á titilvörn.
Scottie Scheffler stefnir á titilvörn. Jacob King/PA Images via Getty Images

Scottie Scheffler hefur verið að skila sér inn á flatirnar í færri höggum en flestir, sem hann segir boða gott í titilvörninni á Opna breska meistaramótinu í golfi, en púttin hafa ekki verið að detta hjá honum.

Ríkjandi meistari mótsins er jafn í 8. sæti, fjórum höggum undir pari, þegar mótið er hálfnað.

Scheffler skilaði sér í hús á 68 höggum í gær, líkt og í fyrradag, en horfði líka á eftir nokkrum fuglum fljúga frá honum. Alls klikkaði Scheffler á sjö púttum fyrir fuglum, fjögur af þeim voru af minna en þriggja metra færi.

„Ég gerði margt vel. Ég kom mér í mjög góðar stöður. Vildi bara að ég hefði hitt úr fleiri púttum,“ sagði Scheffler í gærkvöld.

Scheffler náði þó að pútta fyrir fugli á 5. holu, sömu holu og spilfélagi hans Bryson DeChambeau fékk tveggja högga víti.

Scheffler er nú fjórum höggum á eftir Lucas Herbert, sem leiðir listann eftir að hafa jafnað vallarmetið á Royal Birkdale vellinum í gær.

„Ég held bara áfram að banka á hurðina, held áfram að koma mér í góðar stöður. Ef ég held áfram að slá svona vel verð ég í fínum málum,“ sagði Scheffler en sá síðasti til að verja Opna breska meistaratitilinn var Padraig Harrington árið 2008.

Opna breska meistaramótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport.


Tengdar fréttir

Stuttu pútti frá besta hring sögunnar

Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti.

Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti

Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×