Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar 18. júlí 2026 16:02 SJÁ eru samtök þeirra sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að ganga í Evrópusambandið (þið vitið … "Já til að SJÁ" og allt það). Eins og allir vita sjálfsagt núorðið þá birtu þessi samtök um daginn myndband þar sem þessi afstaða var rökstudd með því að matur væri ódýrari í Evrópusambandsríkjunum. Því til sönnunar var því haldið fram að mjólkurfernan kostaði 380 krónur hér á Íslandi, sem gerði samanburðinn við draumaland Evrópusambandsins auðvitað skelfilegan fyrir Íslenska neytendur. Að myndbandinu stóðu varaborgarfulltrúi Viðreisnar og óskilgreint "teymi" SJÁ samtakanna sem hún sagði að hefði staðið með sér að framkvæmdinni.Hið rétta er auðvitað - eins og margir fjölmiðlar hafa bent á - að mjólkurfernan kostar hér 235 krónur, sem breytir samanburðinum töluvert svo ekki sé meira sagt: jafnvel þeir sem ekki velta mjólkurverðinu sérstaklega fyrir sér þegar þeir raða í innkaupakörfuna geta gengið úr skugga um það með snöggri uppflettingu á netinu, og ætti ekki að taka sæmilega tölvufært fólk nema nokkrar sekúndur að komast að þessu.Þetta eru undarleg vinnubrögð, sama hvort þau eru með vilja eða bara klaufalegt klúður. Einungis er hægt að sjá tvær hugsanlegar skýringar á þessu: (a) ýmist er áróðursteymi SJÁ að ljúga blákalt að almenningi gegn betri vitund (en voru svo óheppin að það komst upp um þau), eða (b) vinnubrögðin hjá SJÁ eru einfaldlega ekki vandaðri en svo að þar á bæ tína menn tölur og "staðreyndir" úr lausu lofti eftir því sem þeim hentar best, og eru síðan ekkert að ómaka sig á því að sannprófa staðreyndirnar sínar áður en þeim er slegið fram.Það skiptir hinsvegar í raun engu máli hvor skýringin er rétt, því báðar gera þær málflutning samtakanna með öllu ómarktækan. Ef einhver verður uppvís að því að segja þér vísvitandi ósatt þá tekurðu auðvitað ekki mark á viðkomandi framar, en hvað ef vinnubrögð viðkomandi eru svo óvönduð og hroðvirknisleg að hann hefur ekki rænu á að kanna einföldustu hluti á borð við hvað mjólkufernan kostar úti í búð? Hvernig í ósköpunum áttu þá að geta tekið mark á þeim sama þegar hann talar síðan fjálglega um flóknar hagstærðir líkt og verðbólgu, lánskjör, gjaldmiðla, atvinnuleysi, fasteignaverð, skuldir lífeyrissjóðakerfisins eða hvað svo sem hann grípur í til að reyna að sannfæra þig um að lífið sé betra í Evrópusambandinu? Er einhver ástæða til að ætla að viðkomandi hafi haft fyrir því að staðfesta þær tölur … eða er ekki allt eins líklegt að þær séu líka gripnar úr lausu lofti til að reyna að búa sér til málstað úr engu? Höfundur er tölvunafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar