Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 18. júlí 2026 18:01 Ég furða mig á hvers vegna aðalbaráttan um ESB fer fram í mjólkurbúð eða á skyndibitastöðum. Þetta er stór ákvörðun um framtíð okkar og afkomenda okkar sem við erum að ræða, ekki um hvað við borgum fyrir skyndibita þó að við rennum honum niður með mjólk. Verðið á þessum hlutum er ekki fast og getur breyst hvenær sem er, bæði hér heima og í öðrum löndum. Það er margt sem hefur áhrif á verð eins og kostnaður við flutning og kostnaður við framleiðslu. Þið vitið að Ísland er langt í burtu frá hinum ESB-löndunum og þar að auki eyja. Vöruverð hér getur aldrei verið sambærilegt verði í löndum Evrópu bæði vegna þess hvað markaðurinn er lítill og hvað við erum langt í burtu frá öðrum löndum. Vörur kosta ekki það sama á Raufarhöfn og í Reykjavík, við vitum hvers vegna og „sættum“ okkur við það. Við vitum líka að verð getur verið misjafnt eftir búðum, til dæmis er verðið í Krambúðinni hærra en í Bónus og kaffið í Te og kaffi er dýrara en hjá Olís. Þetta vitum við vel. Undarleg ummæli Ég furða mig líka á ummælum forseta landsins um að þetta væri lýðræðisæfing. Þetta er ekki æfing, þetta er ákvörðun um framtíð okkar og landsins sem við unnum. Þess utan hafa flestir Íslendingar kosið oft og mörgum sinnum og við kunnum á lýðræðið og þurfum ekki æfingu, þeir sem eru nýkomnir á kosningaaldur og að stíga sín fyrstu skref hafa samt oft tekið þátt í alls konar kosningum og vita hvernig þetta virkar og þurfa því ekki að æfa sig heldur. Það geta flestir aflað sér upplýsinga um kosningar og lýðræði bæði á vefmiðlun og hjá sínum nánustu. En öll erum við ein í kjörklefanum og veljum það sem við teljum réttast eftir að hafa kynnt okkur málið. Það má finna alls konar upplýsingar, misgóðar og réttar, en vefur ESB er mjög góður og hvað er betra en upplýsingar beint frá ESB um hvernig sambandið virkar? Ég tók saman nokkur atriði til að skoða í grein minni „ESB-Pakkinn“ Enn undarlegri ummæli Ég sá mann deila útreikningi á 70 milljóna íbúðalánum á Íslandi og í Danmörku. Þar var borið saman verðtryggt lán til 40 ára á Íslandi og danskt óverðtryggt lán til 30 ára. Þetta var auðvitað svakalegur munur á afborgunum, látum vera þótt það séu borin saman mismunandi lán en hér vantar allar forsendur. Hvaða gengi var þegar hann breytti dönsku krónunni í íslenskar krónur, hvað hátt hlutfall af íbúðarverði er þetta? Hvað er íbúðarverð í Danmörku? Getur hinn almenni Dani keypt íbúð fyrir meðallaunin sín? Og hvað er hann þá orðinn gamall? Eins og þið sjáið er hér margt sem þarf að skoða þó að maður hnjóti strax um muninn á lánunum, bæði verðtryggingunni og árafjölda. Tókuð þið eftir því að Danir eru ekki með evru heldur sinn gjaldmiðil, sína eigin krónu, alveg eins og við, en þetta er samt sett fram sem sönnun á kostum þess að taka upp evruna. Með þessu lét hann fylgja eftirfarandi skilaboð til sinna nánustu: „Það sem ég vil segja við roskið fólk í fjölskyldu og vinahópi: Þið viljið ekki að barna- og barnabarnabörn ykkar heimsæki ykkur öldruð og spyrji: „Afi/amma, hvernig greiddir þú atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni árið 2026? Greiddir þú atkvæði með mér og börnunum mínum eða á móti okkur?“ „Gáum að því“ Þess má svo til gamans geta að um 100 m2 einbýlishús á Raufarhöfn kostar núna um 18 milljónir en svipað hús í 109 Reykjavík um 100 milljónir. Vöndum okkur og verum málefnaleg og umfram allt kjósum eftir okkar sannfæringu eftir að hafa kynnt okkur málið vel, látum ekki svona umræðu afvegaleiða okkur. Höfundur er félagi í Til Vinstri við ESB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar