Golf

Fox sýndi stál­taugar og vann sitt fyrsta risamót

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ryan Fox komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska meistaramótinu í fyrra en gerði sér lítið fyrir og vann það í ár.
Ryan Fox komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska meistaramótinu í fyrra en gerði sér lítið fyrir og vann það í ár. getty/Oisin Keniry

Ryan Fox, 39 ára Nýsjálendingur, stóð uppi sem sigurvegari á Opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk í dag. Þetta er hans fyrsti sigur á risamóti á ferlinum.

Í gær jafnaði Fox vallarmetið á Royal Birkdale er hann lék á átta höggum undir pari. Fox var tveimur höggum á eftir Sam Burns fyrir lokahringinn í dag.

Eftir að hafa leikið á fimm höggum undir pari í gær náði Burns sér ekki jafn vel á strik í dag. Bandaríkjamaðurinn lék lokahringinn á tveimur höggum yfir pari og varð að gera sér 3. sætið á mótinu að góðu.

Cameron Young lék manna best í dag, á sex höggum undir pari, og hann lauk leik á samtals átta höggum undir pari.

Young kláraði á undan Fox og vonaðist til þess að hann misstigi sig svo úrslit mótsins réðust í bráðabana.

Til þess kom þó ekki. Fox gat tryggt sér sigurinn með því að fá fugl á 18. holu og gerði það. Fox sýndi mikið öryggi þegar mest var undir en hann fékk fjóra fugla á síðustu sex holunum.

Fox lék á tveimur höggum undir pari í dag og á tíu höggum undir pari samtals.

Hann er fjórði kylfingurinn frá Nýja-Sjálandi sem vinnur risamót. Áður höfðu Bob Charles, Michael Campbell og Lydia Ko afrekað það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×