Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar 20. júlí 2026 07:30 Þegar horft er yfir sögu Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar blasir við öllum sem það vilja sjá að Evrópusambandið er eitt merkilegasta stjórnmálaverkefni nútímans. Það hefur breytt álfu styrjalda, þjóðernisátaka og valdapólitíkur í samfélag sjálfstæðra ríkja sem leysa ágreining sinn með lögum, samningum, stofnunum og lýðræðislegri þátttöku almennings. Fyrir mér er spurningin sem við þurfum að svara því ekki bara sú hvort aðild að ESB henti Íslandi út frá einstökum hagsmunum í sjávarútvegi, landbúnaði, gjaldmiðilsmálum eða vaxtastigi. Hún er líka önnur og miklu stærri: Hvar eigum við heima í veröld þar sem vald safnast á færri hendur, þar sem stórveldi beita efnahagslegum og hernaðarlegum þrýstingi og þar sem alþjóðleg stórfyrirtæki geta haft meiri áhrif á daglegt líf fólks en flest einstök ríki? Í mínum huga er svarið mjög skýrt. Ísland á heima með þeim ríkjum sem vilja byggja alþjóðasamstarf á lýðræði, mannréttindum, réttarríki, jafnrétti og félagslegri ábyrgð. Friðarhlutverk ESB er ekki bara orðið tómt. Í áratugi börðust Evrópuríki hvert gegn öðru. Nú sitja þau við sama borð, setja sameiginlegar reglur og leita málamiðlana. Það er auðvelt að gera lítið úr slíku samstarfi þegar friðurinn virðist orðinn sjálfsagður. Innrás Rússlands í Úkraínu minnir okkur óþyrmilega á að friður, landamæri og sjálfsákvörðunarréttur þjóða eru ekki sjálfgefin verðmæti sem ekki verður haggað. Evrópa þarf að geta staðið saman. Hún þarf að geta varið lýðræðisríki, stutt nágranna sína og talað af þunga þegar alþjóðalög eru brotin. ESB gegnir algjöru lykilhlutverki sem nauðsynlegt mótvægi við stórveldi á borð við Bandaríkin, Kína, Indland og Rússland sem öll eru áhrifamikil hvert með sínum hætti. Ísland eitt og sér hefur takmarkað vægi gagnvart slíkum ríkjum og það gildir líka um Evrópuríkin hvert í sínu lagi. Saman geta þau hins vegar sett reglur, varið hagsmuni sína og mótað alþjóðlega þróun. Það skiptir máli í viðskiptum, loftslagsmálum, öryggismálum, tækniþróun, mannréttindum og neytendavernd, svo eitthvað sé nefnt. Stærstu tæknifyrirtæki heims hafa aðgang að upplýsingum um hegðun, samskipti, kauphegðun og skoðanir milljarða manna. Þau stýra að miklu leyti því hvaða upplýsingar fólk sér, hvernig auglýsingum er beint að einstaklingum og hvaða fyrirtæki komast að á stafrænum mörkuðum. Smáríki hafa vægast sagt afar takmörkuð áhrif á þessa þróun. Evrópusambandið getur hins vegar sett reglur sem jafnvel stærstu fyrirtæki heims þurfa að virða. Persónuvernd, stafrænn réttur borgara, samkeppni á netmörkuðum og ábyrgð stórra samfélagsmiðla eru dæmi um svið þar sem ESB hefur þegar haft áhrif langt út fyrir eigin landamæri. ESB snýst ekki um andlitslausar stofnanir í Brussel. Þvert á móti snýst það um réttindi fólks í daglegu lífi: rétt neytenda, rétt farþega, rétt námsmanna til að sækja menntun yfir landamæri, rétt fólks til að búa og starfa í öðrum löndum, rétt til persónuverndar og rétt til öruggari vinnustaða. Það snýst líka um félagslega þætti þar sem markaðurinn á að þjóna fólki, ekki öfugt. Í samanburði við mörg önnur stór hagkerfi eru ríki ESB sérstök að þessu leyti. Evrópski innri markaðurinn er stór og öflugur, en honum fylgja kröfur um réttindi launþega, vinnuvernd, jafnrétti, fæðingarorlof, samráð, persónuvernd og félagslegt öryggi. Auðvitað er staðan mismunandi milli ríkja og ESB leysir ekki allan vanda en leiðin er engu að síður skýr: hagvöxtur á ekki að byggjast á því að veikja stöðu launafólks, brjóta niður neytendavernd eða láta stórfyrirtæki ráða ferðinni án lýðræðislegs aðhalds. Aðild að Evrópusambandinu þýðir síður en svo að Ísland hætti að vera Ísland. Danir eru áfram Danir, Svíar áfram Svíar, Írar áfram Írar og Finnar áfram Finnar. Aðild þýðir ekki að þjóðir afsali sér sérkennum sínum eða sérstöðu. Aðild þýðir að þjóðirnar velja að verja hagsmuni sína og gildi í samstarfi við aðrar þjóðir sem standa frammi fyrir sömu áskorunum og verkefnum. Ísland á að taka þátt þar sem reglurnar eru mótaðar. Við eigum að hafa rödd við borðið og beita henni af skynsemi og ábyrgð. Ég hef lengi haft djúpa sannfæringu fyrir því að aðild að Evrópusambandinu þjóni sameiginlegum hagsmunum okkar Íslendinga best. Höfundur er lögfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Jón Steindór Valdimarsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar