Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar 21. júlí 2026 08:32 Undanfarið hafa tveir forystumenn stéttarfélaga tekið beinan og virkan þátt í baráttunni gegn kosningum um áframhaldandi viðræður við ESB. Sem vekur mér furðu, sérstaklega í ljósi þess að á áhrifasvæði þeirra er fiskvinnsla að miklu leyti horfin, sem áður fyrr greiddi góð laun. Félagsmenn þessara félaga hafa misst vinnuna og má t.d. vísa í fréttir frá Reykjanesi nýlega, hvað þá ítrekaðar fréttir frá Akranesi síðustu ár, en þar er fiskvinnsla má segja horfin, sem áður var þó hornsteinn samfélagsins þar ásamt veiðum. Margar stærri útgerðir, s.s. Samherji, Brim, Ísfélagið, Síldarvinnslan o.fl. reka eigin fiskvinnslur og dreifingarfyrirtæki í Evrópu (t.d. í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi og Spáni) sem og Iceland Seafood. Auk þess að flytja eigin afla út hafa þau í auknum mæli keypt fisk á mörkuðum til útflutnings, óunnin. Breyttar neysluvenjur Þegar horft er til þess að neysluvenjur hafa verið að breytast (hráefni og tilbúnir réttir í neytendumbúðum eru að verða ráðandi í verslunum) mætti ætla að forystumenn verkalýðsins legðu áherslu á að fá vinnsluna aftur til landsins. Gerðist það munu tekjur landsins aukast og ný störf skapast.Og með inngöngu í ESB munu auk þess allir tollar falla niður. Aukin tækifæri og auknar tekjur. Með aukinni fiskvinnslu í neytendaumbúðir hérlendis má auka söluverð afurðanna mikið (talað er um allt að 50% hækkun). Starfsmönnum í fiskvinnslu og pökkun myndi fjölga, auk tengdra starfa, t.d. vélvirkjar, sölumenn, flutningur o.fl. Miðað við útflutning á óunnum fiski (heildarútflutningur alls fiskafla 2025 um 360 milljarðar króna), gætum við vænst þess að útflutningstekjur myndu vaxa mikið. Hér liggja tækifæri Íslands! Svör frá verkalýshreyfingunni? Því þætti mér sanngjarnt og fróðlegt að báðir forystumenn verkalýðsfélaganna fjölluðu um þessi mál á heiðarlegan hátt. Einnig t.d. hvernig við “gætum lagfært vexti, verðtryggingu og verðbólgu sjálf”, sem ekki hefur tekist frá árinu 1944 (meðalverðbólga yfir 14%, vextir nú um 10% og hafa farið yfir 30% auk þess sem með verðtryggingunni var í raun búin til ný mynteining árið 1979). Þá væri einnig fróðlegt að fá álit þeirra á vaxtamun landsins við t.d. Danmörku, en af 50 m.kr. láni þarf landinn að greiða 250.000 kr. meira á mánuði í vexti umfram Danann.Og til greiðslu þess vaxtamunar þurfa tekjur að vera um 470.000 kr. hærri á mánuði vegna skatta, stéttarfélagsgjalda og greiðslna í lífeyrissjóð (fyrir 40 ára lán yrði vaxtamunur í heild a.m.k. 110 m.kr. hærri m.v. vaxtakjör í Danmörku). Höfundur er verkfræðingur. Einnig mættu áhugasamir lesa eftirfarandi greinar: Fiskifréttir 5. mars 2026, “Íslensk fiskvinnsla í stórhættu.” Fréttaskýring BBL,10. desember 2019, “Íslendingar umsvifamiklir í útgerð erlendis” Sveinn Atli Gunnarsson, DV 16.07.2026 “Tollamúrinn sem heldur frystihúsunum tómum og flytur störfin til Evrópu”: Í gegnum EES-samninginn höfum við greiðan aðgang að Evrópumarkaði fyrir óunninn eða lítið unninn fisk. Við megum flytja út heilan þorsk í ís eða fryst flök nánast án tálmana. En um leið og við ætlum að sýna metnað og vinna vöruna frekar á Íslandi, t.d. reykja hana, setja hana í neytendapakkningar fyrir stórmarkaði eða búa til hágæða tilbúna rétti, þá skella á okkur tollamúrar ESB, oft á bilinu 12% til 20%. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar