Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar 23. júlí 2026 10:31 Viðgerð á mótor Herjólfs IV er lokið og ferjan siglir á ný á báðum mótorum milli lands og Eyja. Baldur heldur því heim og hefur áætlunarsiglingar á Breiðafirði að nýju. Við þennan áfanga vil ég gera grein fyrir ákvörðuninni sem tekin var í júní og því sem framundan er. Erfitt sumar Fjarvera Baldurs reyndi á samfélögin við Breiðafjörð. Ferðaþjónusta á sunnanverðum Vestfjörðum varð fyrir höggi og grunnþjónusta við Flatey var lakari en íbúar eiga að venjast, hvort sem litið er til vatnsflutninga, sorphirðu eða flutninga á afla og aðföngum. Særún leysti flest verkefni en hefur hvorki stærð né burðargetu Baldurs. Ákvörðun af illri nauðsyn Stór orð hafa fallið um flutning Baldurs til Eyja. Í yfirlýsingum sveitarstjórnarfólks var ákvörðunin sögð hafa verið tekin til að mæta auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja. Það er ekki rétt heldur var ákvörðunin öryggisráðstöfun. Frá því í apríl sigldi Herjólfur á öðrum af tveimur mótorum. Við þær aðstæður þurfti ekki nema ölduhæð yfir tvo metra eða vind yfir tólf metra á sekúndu til að skipið kæmist ekki í Landeyjahöfn og þyrfti að sigla til Þorlákshafnar sem er rúmlega þriggja og hálfrar klukkustundar sigling í stað 35 mínútna. Við slíkar aðstæður fækkaði daglegum ferðum skipsins úr sjö til átta niður í tvær. Í því ástandi er illmögulegt að gera nokkur framtíðaráform varðandi Vestmannaeyjar, enda alls óvíst hvort hægt sé að komast til Eyja. Fullar áætlunarsiglingar á einum mótor hefðu jafnframt stóraukið álag á þann mótor sem eftir var. Hefði seinni mótorinn bilað hefði skapast hætta lík þeirri sem varð þegar vélarbilun varð í fyrirrennara núverandi Baldurs, sem var einungis með eina vél, og samgöngur til Vestmannaeyja rofnað. Fjarvera Baldurs af Breiðafirði hefði þá orðið mun lengri. Framtíð ferjusiglinga Verkefnið nú er að koma í veg fyrir að þessi staða komi upp aftur. Fyrsta skrefið hefur þegar verið stigið, en tveir nýir rafmótorar hafa verið pantaðir til að eiga til vara ef samskonar bilun kemur upp. Með varamótora tiltæka hér á landi verður komið í veg fyrir að margra mánaða bið eftir nýjum mótor erlendis endurtaki sig. Í haust hefst vinna við nýja heildstæða ferjuáætlun fyrir landið allt, þar sem litið verður til endurnýjunar flotans og samnýtingar varaskipa. Í þeirri vinnu verður kallað eftir virkri þátttöku sveitarfélaganna við Breiðafjörð, meðal annars um hlutverk Baldurs sem varaskips og þá þjónustu sem tryggja skal þegar hann er kallaður til afleysinga. Þar verður einnig skoðað hvernig nýta megi Herjólf III sem best þegar skipið kemst á haffæri í haust. Ég þakka íbúum og fyrirtækjum við Breiðafjörð þolinmæðina í sumar. Baldur er kominn heim og verkefnið fram undan er að byggja upp ferjukerfi hægt er að treysta á. Höfundur er innviðaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyjólfur Ármannsson Ferjan Baldur Samgöngumál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar