Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar 26. júlí 2026 09:01 Ég ætla að leyfa mér að byrja á orðum sem í mínum huga eru skýr sannindi: Eftir 29. ágúst þá erum við annað hvort á leið inn í ESB — eða ekki. (Þótt vissulega verði hægt að sveigja af leið, fyrst um sinn.) Annað hvort segir meirihluti þjóðarinnar Já, og við hefjum á ný aðildarviðræður. Sækjum um aðild og förum sem þjóð í vegferð sem er ætlað að ljúka með stórfelldum breytingum á stjórnarfari landsins. Eða við segjum Nei, og leggjum spurninguna til hliðar. Hvernig sem fer, þá fer í hönd nýr tími fyrir íslensk stjórnmál. Vaxandi klofningur og mögulegt andsvar Evrópuspurningin hefur mótað stjórnmál á Íslandi síðustu árin. Hún hefur ekki aðeins klofið stjórnmálafylkingar heldur einnig stjórnmálavitund okkar. Þessi klofningur hefur dýpkað á síðustu árum, og gert það samhliða samfélagsþróun sem hefur einkennst af gjörbreyttu fjölmiðlaumhverfi og ríkjandi vantrausti almennings til stjórnmálafólks (á löngu tímabili eftirhrunsáranna). Hvoru tveggja — nýmiðlarnir og hið pólitíska óþol — hefur gert sitt til að stokka upp íslenska flokkakerfið. Útkoma þessa alls er svo pólitískt landslag þar sem ýmis nýframboð, andófsframboð og persónuflokkar hafa verið áberandi. Sú þróun er ekki í sjálfu sér neikvæð en við horfum þó einnig upp á fylgikvilla sem eru svo sannarlega hættulegir samfélaginu. Svo sem: popúlismi, pólarísering og upplýsingaóreiða. Þjóðfélag sem elur á sundrung, fyrst og síðast, er ekki líklegt til framfara. Við horfum upp á ástand sem einfaldlega getur ekki varað til lengdar. Það er engin tilviljun að lýðræðisumhverfið sem við erfðum, með sínum hefðum og sínum stofnunum, var mótað af breiðfylkingum sem byggðu á beinni þátttöku almennings. Það er því mín sannfæring að samfélaginu sé nauðsynlegt, aftur, að byggja upp öflugar breiðfylkingar sem vinna að því að finna samhljóm innan eigin raða. Það er vandasamt að segja hvernig slíkar breiðfylkingar gætu litið út í dag. Tvennt er þó víst: (1) almenningur á og verður að taka aukinn þátt í að móta eigið samfélag, og (2) þegar Evrópuspurningunni hefur verið svarað af þjóðinni þá ættu að skapast tækifæri til að draga fylkingar saman og byggja upp stöndugri stjórnmálaöfl með sterkari grasrót. Útúrdúr: Anton Jäger og stjórnmál á yfirsnúningi. Sagnfræðingurinn Anton Jäger hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir bók sína Hyperpolitics, þar sem hann rýnir í þróun stjórnmála og samfélags á 20. og 21. öldinni. Greining Jägers byggir á tveimur ásum: annars vegar ‚stjórnmálavæðing‘ (sem getur falið í sér kosningaþátttöku, mótmæli, jafnvel pólitískt ofbeldi) og hins vegar ‚stofnanavæðing‘ (aðild að flokkum, verkalýðsfélögum og ýmsum borgaralegum félögum). Tímabilin sem hann teiknar upp er fjögur talsins: Fjöldastjórnmál (1914–1989): Tímabil sem er staðsett hátt á báðum ásum. Þetta var „gullöld borgaralegs lýðræðis“ — þar sem undirstéttir voru skipulagðar í gegnum verkalýðsfélög og flokka. Fólk var félagsbundið: í stjórnmálaflokkum, verkalýðsfélögum, söfnuðum, verkamannafélögum, og almannaheillafélögum. Ekki að ástæðulausu var þetta einnig tímabil þar sem pólitísk barátta skilaði áþreifanlegum árangri. Eftirstjórnmál (1989–2008): Tímabil sem er lágt á báðum ásum. Pólitísk þátttaka og þátttaka í borgaralegu samfélagi takmörkuð. Teknókratar taka við stjórntaumunum. Hin svokallaða „endalok sögunnar“-stemning ríkjandi og mikil áhersla á alþjóðlega markaði og fjármál. Andstjórnmál (í kjölfar alþjóðlegu fjármálarkrísunnar 2008): Reiði í kjölfar fjármálahruna. Stjórnmálavæðing eykst á ný, en stofnanirnar eru áfram holar að innan. Almenningur hafnar elítunum og nýir popúlistahópar verða til. Of-stjórnmál/„hyperpolitics“ (síðustu tíu ár eða svo): Jäger fær hugtakið að láni frá Peter Sloterdijk — það geisa menningarstríð með snörpum lotum af æsingi og hneykslun. Mótmæli og mótmælahreyfingar áberandi en varanlegur árangur hins vegar af skornum skammti. Niðurstaðan, eins og Jäger orðar það, er „öfgafull stjórnmálavæðing án pólitískra afleiðinga.“ Þjóðríkið, Sambandsríkið, og samábyrgðin? Greining Jägers passar ágætlega við þróun íslensks samfélags. Í grófum dráttum, alla vega, og ef við hugsum um meginstrauma sögunnar. Eins og oftast er tilfellið þá felst lausnin við krísu samtímans varla í því að snúa til baka í óbreytt fyrirkomulag fortíðarinnar. Slík afturför er útilokuð. Við getum hins vegar sótt í fyrirmynd fortíðar og unnið markvisst að því að byggja upp öflugra, borgaralegt lýðræðissamfélag. Það er á okkar valdi. Og hvar stöndum við þá, varðandi spurninguna sem liggur fyrir okkur þann 29. ágúst næstkomandi? Ég læt lesendum eftir að gera það upp við sig, hvor sé líklegri umgjörð fyrir betra samfélag á Íslandi – þjóðríkið eða sambandsríkið (í mótun). Hvað svo sem við kjósum þá er holt samt að minna sig á að raunverulegar úrbætur og framfarir verða ekki að veruleika nema með beinu framlagi, þátttöku og samvinnu. Sama hvert stjórnarfarið verður. Gerum okkar til að efla íslenskt samfélag! Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar