Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar 27. júlí 2026 11:00 Orðið vesen er ekki íslenskt - það barst hingað frá dönsku, „væsen“. Á þeim öldum þegar Ísland laut stjórn Danakonungs var orðið notað um embættiskerfi einveldisins og þróaðist svo í að vera notað fyrir ríkisstofnanir eins og t.d. Skattevæsenet. Á íslensku þróaðist merking orðsins yfir í að merkja fyrirhöfn, vafstur og óþarfa flækjur. Í dag skilja allir Íslendingar hvað átt er við þegar sagt er: „Þetta er bara eitt allsherjar vesen.“ Kannski er það engin tilviljun. Orðið festi rætur hér á þeim öldum þegar Ísland laut stjórn erlends valds. Í margar aldir réðu aðrir yfir örlögum landsins. Ákvarðanir sem skiptu sköpum fyrir íslenskan almenning voru teknar í Kaupmannahöfn af fólki sem hafði hvorki beina þekkingu á íslenskum aðstæðum né sérstaka hagsmuni af velferð landsins. Ísland var jaðarsvæði í stóru ríki þar sem þarfir miðjunnar vógu jafnan þyngra en þarfir útjaðarsins. Skýrasta dæmið var einokunarverslunin og fríhöndlunin sem fylgdi. Í vel tvær aldir máttu Íslendingar ekki stunda inn- og útflutning á eigin forsendum. Verð á inn- og útflutningi réðst af einokun en ekki samkeppni. Á sama tíma hófst í Evrópu iðnbylting, verslun blómstraði og nýsköpun tók stökk fram á við. Ísland sat á sama tíma fast í kerfi sem dró úr frumkvæði, samkeppni og verðmætasköpun. Þetta er lærdómur sögunnar. Þegar valdið færist fjær fólkinu verður hagsmunum smáþjóðarinnar auðveldlega fórnað fyrir hagsmuni stærri heildar. Því stærra sem stjórnkerfið verður, þeim mun fleiri verða reglurnar og málamiðlanirnar, og skrifræðisvesenið vex og vex. Það var ekki fyrr en árið 1855 þegar fríhöndluninni lauk, að Íslendingar fengu fullt verslunarfrelsi og gátu verslað við allar þjóðir. Þá fyrst opnaðist íslenskt atvinnulíf fyrir alþjóðlegri samkeppni og nýjum tækifærum. Áhrifin létu ekki á sér standa. Á síðari hluta 19. aldar tóku íslensk fyrirtæki að rísa af krafti. Þar urðu umsvif Ásgeirs Ásgeirssonar á Ísafirði skýrasta tákn nýrrar aldar. Ásgeir byggði upp stærsta fyrirtæki landsins með útgerð, fiskvinnslu og alþjóðleg viðskiptum með beinum skipaflutningum til erlendra hafna. Hann sýndi hvað íslenskt frumkvæði gat skapað þegar frelsi í viðskiptum var raunverulegt. Það var ekki tilviljun að íslensk fyrirtæki tóku að vaxa þegar ákvörðunarvaldið færðist nær landsmönnum. Smæð Íslands varð ekki hindrun heldur samkeppnisforskot. Lítið samfélag gat brugðist hraðar við, tekið eigin ákvarðanir og skapað umhverfi þar sem frumkvæði og nýsköpun fengu að blómstra. Þessi þróun var kjarninn í hugsun Jóns Sigurðssonar. Hann leit á verslunarfrelsi, atvinnufrelsi og sjálfsforræði sem órjúfanlega þætti sömu hugsjónar. Í Nýjum félagsritum árið 1844 skrifaði hann að „félagsfrelsið [væri] aðalstofn allrar framfarar.“ Með því átti hann ekki aðeins við stjórnmál heldur einnig efnahagslegt frelsi, frumkvæði einstaklinga og getu samfélagsins til að byggja upp eigin velmegun. Þetta er kjarninn í sjálfstæðissögunni okkar. Jón barðist ekki fyrir því að Íslendingar fengju fleiri fulltrúa í erlendu stjórnkerfi. Hann barðist fyrir því að ákvarðanir um Ísland yrðu teknar á Íslandi. Fullveldið var ekki markmið í sjálfu sér heldur leið til að skapa öflugra atvinnulíf, meiri verðmætasköpun og betri lífskjör. Sú saga er ekki aðeins hluti af fortíðinni. Hún endurtekur sig enn í dag. Á síðustu áratugum hafa íslensk fyrirtæki byggt upp alþjóðlegan árangur úr litlu samfélagi sem getur brugðist hratt við, tekið eigin ákvarðanir og lagað regluverk að íslenskum aðstæðum. Það er einmitt þessi sveigjanleiki sem Evrópusambandið segir sjálft að skorti í Evrópu í dag. Stærsta áhyggjuefni Evrópusambandsins, aðildarríkja þess og embættismanna eru efnahagsmál. Í svokallaðri Draghi-skýrslu sem sambandið lét gera árið 2024 er komist að þeirri niðurstöðu að Evrópa hafi dregist aftur úr Bandaríkjunum og Kína hvað varðar framleiðni, nýsköpun og tækniframfarir. Skýrslan bendir á sundurlausa fjármagnsmarkaði, hæga ákvarðanatöku, sívaxandi regluverk og skort á fjárfestingu. Þetta eru ekki mín orð, heldur orð Evrópusambandsins sjálfs. Í kjölfar skýrslunnar hefur Evrópusambandið boðað umfangsmiklar aðgerðir til að einfalda regluverk, draga úr skrifræði og efla nýsköpun, meðal annars með eflingu á styrkjakerfi sambandsins. Vonandi skila þessar aðgerðir árangri, en enn er óvíst hvort þær dugi til að endurheimta samkeppnishæfni Evrópu. Evrópsk fyrirtæki kvarta sáran yfir því að sífellt flóknara regluverk geri starfsemi þeirra erfiðari og að sífellt meiri tími og fjármagn fari í lögfræðiráðgjöf, skýrslugjöf og stjórnsýsluvesen í stað nýsköpunar og vaxtar. Á sviði heilbrigðistækni velja evrópsk fyrirtæki í auknum mæli að sækja fyrst á Bandaríkjamarkað eða til Asíu áður en þau fara inn á Evrópumarkað vegna umfangs og kostnaðar evrópska regluverksins. Evrópusambandið er auðvitað ekki danska konungsveldið. Það er lýðræðislegt samstarf sjálfstæðra ríkja. En grundvallarspurningin er sú sama: Viljum við að fleiri ákvarðanir um Ísland séu teknar utan Íslands? Við eigum að vera nátengd Evrópu. Við eigum að eiga frjáls viðskipti, öflugt rannsóknasamstarf og sterk tengsl við vinaþjóðir okkar. En samstarf er ekki það sama og yfirþjóðleg ákvarðanataka. Saga Íslands hefur kennt okkur að frelsi skapar framfarir. Fyrst kom afnám einokunarinnar. Síðan fullt verslunarfrelsi. Loks fullveldið. Hvert skref færði ákvörðunarvaldið nær Íslendingum - ekki fjær þeim. Kannski er það þess vegna sem orðið vesen lifði eftir frá dönsku. Það minnir okkur á að þegar valdið færist of langt frá fólkinu verða flækjurnar fleiri. Erlent vald er vesen. Höfundur er frumkvöðull og talsmaður Innviðafélags Vestfjarða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar