Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar 28. júlí 2026 10:02 EES-samningurinn var ekki hugsaður sem pólitísk aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hann var hugsaður sem leið inn á innri markað Evrópu. Kjarninn var skýr, - frjálst flæði vöru, þjónustu, fjármagns og fólks, ásamt þeim reglum sem þurftu til að markaðurinn virkaði. Samkeppni, ríkisaðstoð, opinber innkaup, tæknilegar reglur og neytendavernd. Þetta var markaðs- og viðskiptasamningur. En heimurinn hefur breyst á þeim 32 árum frá því að EES samningurinn tók gildi. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, lýsti þessu vel í nýlegu hlaðvarpsviðtali þegar hún benti á að skilin milli atvinnugreina væru að verða óljósari. Fjarskipti, hugbúnaður, öryggislausnir, fjártækni og gagnavinnsla renna saman. Bankar eru orðnir tæknifyrirtæki. Fjarskiptafyrirtæki bjóða stafrænar öryggislausnir. Bílar eru tölvur á hjólum. Heimili, orka, heilbrigðisþjónusta, greiðslukerfi og opinber þjónusta byggjast nú á sömu stafrænu innviðunum. Þetta er ekki aukaatriði. Þetta er lykillinn að því að skilja EES í dag. Þegar atvinnulífið verður þverlægt verður löggjöfin það líka. Skýrsla starfshóps undir forystu Björns Bjarnasonar um EES-samstarfið frá 2019, unnin fyrir Guðlaug Þór Þórðarson, þáverandi utanríkisráðherra, orðar þetta þannig að eftir Lissabon-sáttmálann hafi greining EES-mála orðið flóknari og grá svæði stækkað. Reglur um innri markað Evrópu ná því nú inn á svið sem fæstir tengdu við EES árið 1994: loftslagsmál, orku, netöryggi, gervigreind, stafræn auðkenni, gagnahagkerfi, fjármálaeftirlit, matvælaöryggi, sjálfbærni, hringrásarhagkerfi og mikilvæga innviði. Og næstu árin mun þessi þróun líklega ná enn lengra: inn í reglur um skýjaþjónustu, gervihnattakerfi, stafræna auðkenningu, netöryggi, tvínota tækni, greiðslukerfi og vernd mikilvægra innviða, - allt svið sem engin sá fyrir árið 1994 að hefðu einn daginn verið talin hefðbundin EES-mál. EES-samningurinn hefur ekki verið endurskrifaður frá grunni. En það sem telst til innri markaðar í dag hefur gerbreyst. Þar með hefur EES orðið mun umfangsmeira regluverk en það var í upphafi. Ísland tekur þetta allt upp vegna þess að íslenskt atvinnulíf er orðið samofið innri markaði Evrópu. Það er ekki gagnrýni á EES samstarfið. Þvert á móti hefur samningurinn reynst Íslandi afar vel. En það breytir ekki þeirri staðreynd að Ísland hefur ekki atkvæði þegar reglurnar eru samþykktar. Þar liggur þversögnin. Við höfum aðlagað hagkerfið, fyrirtækin og stjórnsýsluna að sífellt víðtækara evrópsku regluverki, en stöndum áfram utan þeirra stofnana sem móta það. Sumir virðast telja það fullveldi að fá reglurnar sendar fullunnar og kalla það síðan sjálfstæða löggjafarstefnu. Spurningin er því ekki hvort Ísland eigi að vinna náið með öðrum Evrópuþjóðum. Það gerum við nú þegar. Spurningin er hvort við ætlum til framtíðar að búa við sífellt víðtækara evrópskt regluverk án þess að hafa lýðræðisleg áhrif á mótun þess. Þess vegna er skynsamlegt að ljúka aðildarviðræðum. Ekki vegna þess að aðild sé fyrirfram rétta svarið. Heldur vegna þess að sjálfstæð þjóð með sjálftraust, - þjóð sem hefur tengt framtíð sína svo náið við evrópskt samstarf á rétt á að vita nákvæmlega hvaða kostir standa henni til boða. Ég vil vita meira, - og þess vegna ætla ég að segja JÁ í ágúst. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í samtökunum Sjá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar