Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 30. júlí 2026 07:00 Fram kemur skýrt í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði að verði niðurstaðan í því já hefjist viðræður sem snúist um aðlögun að reglum Evrópusambandsins. Þannig segir þar: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Hið sama kemur fram í gögnum Evrópusambandsins þar sem fjallað er um stækkunarmál þess. Þar á meðal í gögnum sambandsins varðandi umsókn Íslands frá 2009 sem nú á að endurvekja. Til dæmis segir þannig í svonefndum viðræðuramma þess: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Fullyrðingar um að samkomulag hafi verið gert síðast við Evrópusambandið, þess efnis að engin aðlögun ætti sér stað fyrr en eftir að samningur um inngöngu í það hefði verið samþykktur, standast enga skoðun. Engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á það að sambandið hafi samþykkt slíkt fyrirkomulag og ljóst er af gögnum þess að farið var fram á aðlögun samhliða viðræðunum. Bæði í viðræðuköflum sem heyra undir EES-samninginn og þeim sem gera það ekki. Með öðrum orðum yrði Ísland orðið að fullu aðlagað að regluverki og stjórnsýslu Evrópusambandsins þegar mögulegur samningur lægi fyrir sem hægt yrði að kjósa um. Ísland yrði þá í raun efnislega gengið í sambandið og búið að uppfylla kröfur viðsemjandans áður en fyrir lægi hvort samningur yrði samþykktur. Hvort sem fólk telur þetta skipta máli eða ekki er þetta veruleikinn sem kjósendur standa frammi fyrir þegar gengið verður að kjörborðinu í lok sumars. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Fram kemur skýrt í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði að verði niðurstaðan í því já hefjist viðræður sem snúist um aðlögun að reglum Evrópusambandsins. Þannig segir þar: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Hið sama kemur fram í gögnum Evrópusambandsins þar sem fjallað er um stækkunarmál þess. Þar á meðal í gögnum sambandsins varðandi umsókn Íslands frá 2009 sem nú á að endurvekja. Til dæmis segir þannig í svonefndum viðræðuramma þess: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Fullyrðingar um að samkomulag hafi verið gert síðast við Evrópusambandið, þess efnis að engin aðlögun ætti sér stað fyrr en eftir að samningur um inngöngu í það hefði verið samþykktur, standast enga skoðun. Engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á það að sambandið hafi samþykkt slíkt fyrirkomulag og ljóst er af gögnum þess að farið var fram á aðlögun samhliða viðræðunum. Bæði í viðræðuköflum sem heyra undir EES-samninginn og þeim sem gera það ekki. Með öðrum orðum yrði Ísland orðið að fullu aðlagað að regluverki og stjórnsýslu Evrópusambandsins þegar mögulegur samningur lægi fyrir sem hægt yrði að kjósa um. Ísland yrði þá í raun efnislega gengið í sambandið og búið að uppfylla kröfur viðsemjandans áður en fyrir lægi hvort samningur yrði samþykktur. Hvort sem fólk telur þetta skipta máli eða ekki er þetta veruleikinn sem kjósendur standa frammi fyrir þegar gengið verður að kjörborðinu í lok sumars. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar