Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar 30. júlí 2026 07:32 Heimssýn og aðrir andstæðingar ESB-viðræðna vara við því að Ísland gefi eftir yfirráð yfir löggjafarvaldi, framkvæmdavaldi og dómsvaldi. Það er sjónarmið sem skal taka alvarlega. En þá þarf líka að segja alla söguna. Í fyrri grein minni um EES, „Samningurinn sem stækkar í kyrrþey", fjallaði ég um hvernig EES hefur orðið umfangsmeira regluverk eftir því sem innri markaður Evrópu hefur teygt sig inn á fleiri svið atvinnu- og samfélagslífs. Hér spyr ég annarrar spurningar, - Ísland hefur þegar tekið upp stóran hluta þessa regluverks, en hvernig hefur það reynst almenningi? Reglur án atkvæðis Ísland tók stórt skref árið 1994 þegar EES-samningurinn tók gildi. Með EES skuldbatt Ísland sig til að taka upp stóran hluta af regluverki Evrópusambandsins á sviði innri markaðarins. Það sést á öllum þremur valdsviðum ríkisins. Alþingi innleiðir EES-gerðir í íslensk lög. Íslenskar stofnanir framfylgja þeim í stjórnsýslu, eftirliti og leyfisveitingum. Íslenskir dómstólar túlka reglur og lög í ljósi EES-réttar, dóma EFTA-dómstólsins og eftir atvikum út frá dómum Evrópudómstólsins. En efni reglnanna verður að stórum hluta til annars staðar. Íslenskir sérfræðingar koma vissulega að undirbúningi mála á fyrri stigum, en þegar reglurnar eru samþykktar hefur Ísland ekkert atkvæði. Þetta er ekki áróður. Þetta er eðli EES-samningsins. Ísland hefur þannig þegar deilt hluta af raunverulegu ákvörðunarvaldi sínu, þótt stjórnskipuleg ábyrgð sé áfram hér heima. Réttarbætur sem fólk notar Næsta spurning er mikilvægari, - hvernig hefur þetta reynst? Svarið er: heilt yfir furðu vel. Ekki vegna þess að hver regla sé gallalaus, heldur vegna þess að heildaráhrifin hafa verið jákvæð. Margar af mikilvægustu réttarbótum síðari tíma á Íslandi hafa komið í gegnum EES. Persónuverndarlöggjöfin. Réttindi flugfarþega. Sterkari neytendavernd. Reglur gegn markaðsmisnotkun. Samkeppnisreglur. Nethlutleysi. Aukið vöru- og matvælaöryggi. Reglur um greiðsluþjónustu sem opna markaði og auka öryggi neytenda. Þetta eru ekki fjarlægar Brussel-reglur sem enginn finnur fyrir. Þetta eru réttindi sem fólk notar þegar flugi er aflýst, vara reynist gölluð, persónuupplýsingar eru misnotaðar, fyrirtæki beitir yfirburðastöðu eða opinber aðili fer út fyrir eðlileg mörk gagnvart fyrirtækjum og einstaklingum. Þessar reglur hafa aukið frelsi einstaklingsins. Þær hafa styrkt réttarstöðu neytenda og fyrirtækja, - sér í lagi lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þær hafa gert stjórnvöld ábyrgari. Þær hafa þrengt svigrúm stórra hagsmunaaðila til að ráða ferðinni í krafti stærðar, aðgangs og tengsla. Frelsi sem ver fyrst og fremst ríkisvaldið og rétt hinna sterku er fátæklegt frelsi. Of einföld umræða Þess vegna er fullveldisumræðan oft of einföld. Já, EES hefur takmarkað formlegt svigrúm Íslands á mörgum sviðum. En EES hefur líka styrkt raunveruleg réttindi íslenskra borgara. Fullveldi ríkisins og frelsi borgaranna eru ekki alltaf sami hluturinn. Stundum eykst frelsi almennings einmitt þegar ríkisvaldinu og sterkum innlendum hagsmunaöflum eru sett skýrari mörk. Danmörku er ekki stjórnað frá Brussel Hér er líka rétt að hafa eitt í huga sem stundum gleymist í umræðunni, - Danmörku er ekki stjórnað frá Brussel. Henni er stjórnað frá Kaupmannahöfn, Svíþjóð frá Stokkhólmi og Finnlandi frá Helsinki. Þing, ríkisstjórnir og dómstólar þessara ríkja starfa áfram, en á þeim sviðum sem ríkin hafa ákveðið að deila valdheimildum gilda sameiginlegar reglur. Það er ekki galli í kerfinu heldur forsenda þess að samstarfið virki. Sameiginlegur markaður þar sem hver getur hunsað sameiginlegar reglur eftir hentugleika er ekki hvorki sameiginlegur né sanngjarn markaður. Munurinn á Íslandi og Danmörku liggur því ekki í því hvort evrópskt regluverk hafi áhrif. Það hefur áhrif í báðum löndum. Munurinn liggur í því að Danir hafa atkvæði þegar reglurnar eru mótaðar, en Íslendingar taka stóran hluta þeirra upp í gegnum EES án atkvæðisréttar. Þá blasir við einföld spurning. Ef sameiginlegu Evrópureglurnar sem Ísland hefur tekið upp í 32 ár, án atkvæðisréttar við lokamótun þeirra, hafa heilt yfir reynst vel og fært almenningi mikilvægar réttarbætur, af hverju ætti þá að vera stórhættulegt að kanna hvort við getum tryggt sterkari stöðu, meiri áhrif og skýrari kjör með nánara samstarfi? Já í ágúst er ekki já við inngöngu í Evrópusambandið. Það er já við því að klára viðræður, fá niðurstöðuna í hendurnar og leyfa þjóðinni að dæma um hana. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í samtökunum Sjá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar