Viðskipti innlent

Rúm­lega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka.
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink

Nýtt árangurstengt launakerfi Íslandsbanka kostaði bankann yfir sex hundruð milljónir. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam rúmum sjö milljörðum.

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi og var arðsemi eigin fjárs 13,3 prósent á ársgrundvelli. Hreinar vaxtatekjur námu 15,3 milljörðum sem er 1,4 milljörðum krónum meira en á sama tímabili á síðasta ári.

„Báðar þessar lykilstærðir voru hærri en á sama tímabili í fyrra, en lítillega undir væntingum greinenda fyrir fjórðunginn. Hreinar vaxtatekjur jukust um 10% samanborið við saman fjórðung í fyrra og vaxtamunur bankans var 3,4% á fjórðungnum,“ er haft eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, í tilkynningu.

Nýtt árangurstengt launakerfi var tekið upp í byrjun febrúar og kostaði það bankann 671 milljón króna. Þeir starfsmenn sem fengu bónus sem nam undir tíu prósent af laununum þeirra fengu greitt í reiðuféi en umfram það fengu starfsmennirnir afhent hlutabréf í Íslandsbanka. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá.

Markmið nýja launakerfisins var að stuðla að samræmi milli hagsmuna hluthafa, starfsmanna og viðskiptavina auk þess að styðja við sjálfbæran langtímaárangur. Endanleg ákvörðun um greiðslur verður tekin eftir að uppgjörstímabilinu lýkur en hún getur lækkað eða fellt niður bónusa vegna ófullnægjandi árangurs, brota á reglum eða versnandi fjárhagsstöðu bankans.

Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu fyrsta ársfjórðungs eru meðal annars eftirfarandi:

  • Hreinar þóknanatekjur á 2F26 voru 3,3 milljarðar króna, samanborið við þóknanatekjur á 2F25 sem námu 3,6 milljörðum króna.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 94 milljónir króna á 2F26, samanborið við fjármagnstekjur að fjárhæð 13 milljónir króna á 2F25.
  • Stjórnunarkostnaður nam 8,1 milljarði króna á 2F26, en hann nam 7,3 milljörðum króna á 2F25.
  • Kostnaðarhlutfall bankans var 43,1% á 2F26 samanborið við kostnaðarhlutfallið 41,0% á 2F25
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 14,8 milljarða króna á 2F26 og námu 1.416 milljörðum króna í lok 2F26.
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 2,4% á 2F26 og námu 1.038 milljörðum króna í lok 2F26.
  • Eigið fé nam 211,1 milljarði króna í lok 2F26, samanborið við 225,4 milljörðum króna í lok árs 2025.

„Enn ríkir nokkur óvissa um yfirlýstan ásetning stjórnvalda um endurskoðun á skattlagningu fjármálafyrirtækja þar sem engar formlegar tillögur hafa enn verið lagðar fram. Skattlagning íslenskra fjármálafyrirtækja er nú þegar hærri en hjá sambærilegum fyrirtækjum á öðrum Norðurlöndum og frekari skattahækkanir gætu dregið úr samkeppnishæfni íslenska fjármálakerfisins,“ segir Jón Guðni.

Í júní sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra að hann boði enn bankaskatt þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja. Íslensku bankarnir búi þegar við meiri sértæka skattbyrði en bankar í nágrannalöndunum. Útfærslan liggi ekki fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×