Innlent

Vasaþjófar gómaðir á Suður­landi og minkafár í rénun

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum fjöllum við um aðgerðir lögreglunnar á Suðurlandi til að hafa hendur í hári vasaþjófa á ferðamannastöðum en sex voru handteknir í gær. 

Oddur Ævar okkar maður fór að Seljalandsfossi í morgun til að kanna þessi mál og við heyrum í honum í fréttatímanum. 

Þá verður rætt við bæjarstjórann í Mosfellsbæ sem hefur staðið í ströngu undanfarinn sólahring við að reyna að hafa uppi á strokuminkum sem sleppt var lausum af Dalsbúi um síðustu nótt. 

Að lokum minnumst við Gunnars Þórðarsonar eins ástælasta tónlistarmanns þjóðarinnar sem er látinn.

Í sportinu verður svo farið yfir þjálfaramál í enska boltanum en nú styttist á að sú keppni hefjist að nýju.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 30. júlí 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×