Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar 1. ágúst 2026 16:01 Ég er ein af þeim sem eiga mjög erfitt með að henda hlutum sem virka ennþá vel. Ég get ekki látið frá mér flíkur sem eru nánast ónotaðar þótt ég komist ekki lengur í þær, því það mun breytast, er það ekki? Þessi gamla tíska mun koma aftur og svo hafa dætur mínar verið duglegar að slá í gegn í gömlum fötum frá mömmu, ömmu og jafnvel langömmu. Maðurinn minn kaupir sér sjaldan föt og hann vantar aldrei neitt, langar aldrei í búðir, hvað þá að máta nýjar flíkur. Hann vill samt vera smart og það er hann, en það má engu henda og flíkurnar notar hann nánast endalaust. Ég viðurkenni vel þennan veikleika en mér þykir líka vænt um það að eiga ýmislegt gamalt í handraðanum. Ég á til að mynda minningabók og ritgerðir úr grunnskóla, glósur frá MA-árunum en ég verð 40 ára stúdent á næsta ári og hlakka til að fagna þeim áfanga með skólasystkinum mínum 2027. Ég get alls ekki hent fallega myndskreyttu glósunum úr læknadeildinni, hvað þá mikilvægu fæðingarlæknisfræðifyrirlestrunum frá Skotlandi sem ég geymi á glærum einhvers staðar. Þetta er náttúrulega ekki í lagi, það veit ég vel. Þegar ég fermdist fékk ég fallegan útvarpsvekjara að gjöf. Hann hefur nú vakið mig með morgunbæninni á hverjum morgni í 44 ár. Fékk reyndar í jólagjöf fyrir þó nokkrum árum nýtt slíkt appart sem vekur fólk víst með fuglasöng og vaxandi ljósbirtu. En þarf ég það? Sá gamli hefur virkað vel hingað til, þótt vissulega hafi verið erfitt að stilla hljóðið og stundum smá skruðningar frá honum, en það venst. Af hverju að fara að nota eitthvað nýtt þegar það sem þú átt virkar? Nú er mér samt mikill vandi á höndum því vekjarinn minn er farinn að flýta sér, greinilega orðinn lúinn og getur ekki meir. Ég reyni að nýta hverja stund sem Guð gefur mér og vil alls ekki flýta mínu lífi, frekar seinka því og gera aftur það sem er gaman. Verð samt að sætta mig við það að nú er kominn sá tími að nýja tækið skal virkjað og því gamla lagt, vissulega með virðingu og því mun fylgja söknuður. Því spyr ég: Hvers vegna eigum við nú í kosningum í lok ágúst að breyta til? Kunnum við að kveðja hið gamla sem hefur virkað hingað til? Þorum við að velja nýtt og stíga fram á við í nú svo hættulegum heimi? Höfundur er fæðinga- og kvensjúkdómalæknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar