Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 11:32 Sumir eru örvhentir og aðrir skrifa með hægri. Sumir eru örvfættir og aðrir sparka með hægri. Sumir eru jafnhentir og geta sparkað með hvorum fæti sem er. Sumir eru örvhentir en sparka með hægri, eða öfugt. Við erum allskonar. Ég er til dæmis örvhent þegar ég skrifa, en í golfi er ég hægrihent. Hönd mín var aldrei bundin fyrir aftan bak eins og tíðkaðist hér áður fyrr, en frændi minn hafði þungar áhyggjur af því að ég yrði þvinguð til að skrifa með hægri hendi. Hönd hans hafði nefnilega verið bundin fyrir aftan bak í skóla til að leiðrétta örvhendnina. Þótt áratugir væru liðnir lifði óttinn og minningin um þá þvingun enn. Hann var alla tíð örvhentur þrátt fyrir að skrifa með hægri hendi. Í margar kynslóðir ríkti sú sannfæring í skólum og samfélaginu öllu að örvhendni væri frávik sem bæri að uppræta. Börn voru neydd til að skrifa með hægri hendi, hendur þeirra voru jafnvel bundnar fyrir aftan bak, og því haldið fram að með nægum aga mætti leiðrétta þennan meinta galla. Rökin voru gjarnan þau að vinstri höndin stangaðist á við hefðir, trúarbrögð eða einfaldlega skipulag samfélagsins. Í dag hristum við höfuðið yfir þessum vinnubrögðum. Við vitum að örvhentni er meðfæddur og eðlilegur hluti af fjölbreytileika mannlífsins. Tilraunir til að binda vinstri höndina sköpuðu ekkert nema kvíða, stam og vanlíðan hjá börnum sem áttu enga sök aðra en að vera þau sjálf. Því miður birtast sömu rök og viðhorf í dag þegar kemur að réttindum hinsegin og trans fólks. Enn er tekið á móti eðlilegum fjölbreytileika mannlífsins með ótta og tregðu. Enn heyrast raddir sem halda því fram að fólk sé aðeins að elta tískubólu, að hægt sé að telja því hughvarf eða að réttast sé að þrýsta öllum í sama mót. Enn er grafið undan sjálfsmynd fólks í nafni þess sem talið er eðlilegt. Sagan sýnir okkur að samfélög sem reyna að neyða fólk til að afneita eigin eðli uppskera aldrei sátt. Þegar vinstri höndin var bundin varð fólk ekki hægrihent. Það var aðeins rænt tækifærinu til að þroskast á eigin forsendum. Á sama hátt verður hinsegin og trans fólk ekki sís-kynja eða gagnkynhneigt við það að mæta mótspyrnu, fordómum eða lagalegum hindrunum. Það verður aðeins jaðarsett. Það tók samfélagið langan tíma að átta sig á því að örvhentir og hægrihentir gætu skrifað hlið við hlið án þess að heimurinn færi á hvolf. Við þurftum einfaldlega að breyta umgjörðinni, framleiða skæri fyrir örvhenta, endurskipuleggja skólastofurnar og hætta að líta á frávik frá meðaltali sem galla. Barátta hinsegin og trans fólks snýst um nákvæmlega það sama. Samfélagið þarf að laga umgjörð sína að veruleika mannlegrar tilveru í stað þess að þvinga fólk í mót sem hentar því ekki. Sagan dæmir fortíðina hart fyrir tilraunir hennar til að binda hendur örvhentra barna. Hvernig mun sagan dæma viðhorf okkar til hinsegin og trans fólks í dag? Tími þvingaðrar aðlögunar ætti að vera liðinn. Virðing fyrir fjölbreytileikanum er ekki ógn við samfélagið. Hún er forsenda þess að öllum geti liðið vel. Fögnum fjölbreytileikanum á Hinsegin dögum og höldum áfram að rýma til fyrir öllum litrófum mannlífsins. Gleðilega Hinsegin daga! Höfundur er formaður Trans Vina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar