Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 15:01 Þann 25.júlí ók bifreið inn í mannfjölda við Pride-hátíðina í Berlín. Einn lést og fjölmargir slösuðust. Þýsk yfirvöld rannsaka málið sem meint hryðjuverk.Fyrir marga er þetta frétt. Fyrir hinsegin fólk er þetta áminning um að hátíð sem á að snúast um sýnileika, frelsi og öryggi getur á augabragði breyst í vettvang ótta. Þessi veruleiki er því miður ekki fjarlægur… Þetta er veruleiki sem margt hinsegin fólk þekkir. Þegar árás er gerð á Pride göngu einhvers staðar í heiminum verður hún persónuleg. Ekki vegna þess að við þekkjum endilega fórnarlömbin, heldur vegna þess að við vitum að markmiðið er: Fólk eins og við. Á sama tíma sjáum við hér heima orðræðu sem hefði fyrir fáum árum þótt óhugsandi. Fólk gerir lítið úr Pride, hæðist að hinsegin fólki, fagnar skemmdarverkum á regnbogafánum eða skrifar athugasemdir sem svipta fólki mannlegum eiginleikum. Það er mikilvægt að gera greinarmun á gagnrýni og hatri. Allir eiga rétt á skoðunum og umræðu. En þegar fólk er ekki lengur rætt sem manneskjur heldur sem ógn, vandamál eða eitthvað sem beri að losna við, þá erum við komin á hættulegar slóðir. Við eigum ekki að bíða eftir því að alvarlegur hatursglæpur verði að íslenskum veruleika áður en við spyrjum okkur hvert orðræðan er að leiða okkur. Ég er ekki að halda því fram að hver niðrandi athugasemd leiði til ofbeldis. En samfélag sem venst því að hlæja að fordómum eða afsaka þá verður smám saman samfélag þar sem mörkin færast. Þess vegna skiptir máli að standa með fólki áður en eitthvað gerist. Að sýna samstöðu áður en einhver verður fyrir árás. Og að segja skýrt að hinsegin fólk eigi ekki aðeins rétt á að vera til, heldur rétt á að lifa lífi sínu án ótta. Saga samfélaga er ekki skrifuð af þeim sem hrópuðu hæst. Hún er skrifuð af þeim sem kusu að þegja og þeim sem kusu að standa upp. Hvoru megin sögunnar ætlum við að vera? Í tilefni hinsegin daga vil ég enda þetta með þessu: Það þarf hugrekki til að vera sá sem maður er og standa fyrir því hver maður er. Pride var ekki sprottið af þörf til þess að fagna því að vera hinsegin. Heldur út af rétti okkar til þess að fá að vera til, að labba á þessari jörðu, án ofsókna og haturs. Svo í stað þess að velta því fyrir þér hvers vegna það er ekki til Straight Pride, vertu þakklát/t/ur fyrir það að þú þurfir ekki á því að halda. Þú þarf ekki að vera hinsegin til þess að sýna stuðning. Þú þarf aðeins að vera manneskja. Höfundur er kennari og skólastjórnandi frá Siglufirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar