Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 5. ágúst 2026 07:03 Verðtryggð neytendalán hafa verið hluti af íslenskri tilveru í hartnær hálfa öld. Þau voru upphaflega viðbragð við stjórnlausri óðaverðbólgu, á tímum þar sem lánveitendur héldu einfaldlega að sér höndum vegna þess að hver einasta króna sem lánuð var brann upp á verðbólgubálinu innan tiltölulega skamms tíma. Það kom kannski einhverjum heppnum lántökum vel á sínum tíma, en hagkerfi þar sem enginn vill lána né spara er vitaskuld dæmt til að klikka. Þess vegna var verðtryggingin kokkuð upp, eins og sagan segir, við eldhúsborðið heima hjá Ólafi Jóhannessyni þáverandi forsætisráðherra í mars árið 1979. Ólafslögunum fylgdi verðtrygging á bæði sparifé og lánfé. Þetta var, þrátt fyrir allt, heillaskref fyrir íslenskan efnahag á þeirri stundu. En síðan þá höfum við lifað með verðtryggðu krónunni og áttað okkur á því, hægt og rólega, að það er nánast ómögulegt að kveðja verðtrygginguna á meðan við höngum í krónunni. Reikningurinn allur á kassann hjá heimilunum Stjórnvöld hafa gegnum tíðina skrifað hverja skýrsluna fætur annarri um það hvernig megi vinda ofan af þessum ósköpum. Enda hefur verðtryggingin þann stóra galla að flytja alla verðbólguáhættu hagkerfisins beint yfir á skuldara. Þegar verðbólguskot ríður yfir á Íslandi, eru það íslensk heimili sem taka allan skellinn á kassann, í gegnum húsnæðislánin og gömlu góðu námslánin sem við borgum og borgum af, en sjáum nánast aldrei lækka. Annar og óheppilegur galli er svo sá að verðtryggingin gerir stýrivexti Seðlabanka Íslands algjörlega bitlausa. Þeir virka varla þegar fólk getur einfaldlega „flúið“ hækkanir á óverðtryggðum lánum yfir í verðtryggð lán með lægri mánaðarlega greiðslubyrði. Afleiðingin? Vextir á Íslandi þurfa að haldast miklu hærri, miklu lengur, sem býr til keðjuverkandi skaða eins og það framkvæmdastopp og þá kreppu á húsnæðismarkaði sem við horfum upp á í dag. Af hverju bönnum við hana ekki bara? „Af hverju banna stjórnvöld ekki bara verðtrygginguna?“ hefur góður verkalýðsforingi á Akranesi spurt hátt og snjallt ítrekað um langa hríð. Svarið við því er því miður sáraeinfalt: Að banna verðtryggingu íslenskrar krónu með einu pennastriki niðri á Alþingi myndi valda algjöru uppnámi og stíflun á lánamarkaði. Stór hluti af ungu fólki og venjulegu launafólki hefur einfaldlega ekki nokkurn möguleika á að komast inn á húsnæðismarkaðinn nema með því að taka verðtryggð lán. Það er svo dýrt að fá íslenskar krónur lánaðar óverðtryggðar að húsnæðiskaup yrðu einungis á færi þeirra ríku, nema til kæmi veruleg og snögg lækkun á húsnæðisverði, sem myndi aftur stráfella eigið fé húsnæðiseigenda og hafa sérstaklega neikvæð áhrif hjá þeim sem eiga mikið skuldsettar eignir. Hvað verður eftir í veskinu? Þegar fólk fer að ræða stóru orðin í efnahagsmálum, evruna, innri markaðinn og Evrópusambandið, gleymist oft hið einfalda: Hvað verður eftir í veskinu þegar búið er að borga af lánunum? Fyrir venjuleg íslensk heimili, bændur og smærri atvinnurekendur snýst þetta mál nefnilega ekki um háfleyga hugmyndafræði, heldur tvo mjög áþreifanlega þætti í daglegu lífi: Vaxtastig og fyrirsjáanleika. Ef við rýnum í tölurnar liggur ávinningurinn af stöðugu evrópsku umhverfi í þremur meginstólpum sem vinna beint með buddunni hjá almenningi: 1. Vaxtastigið: Stærsta kjarabótin Fyrir flest heimili er húsnæðiskostnaður stærsti einstaki útgjaldaliðurinn. Vegna þess að við kjósum að reka okkar eigin litlu gjaldeyrisskútu á úthafinu, neyðist Seðlabankinn til að halda stýrivöxtum skýjum ofar til þess eins að reyna að halda krónunni á floti. Útreikningar sýna að hvert einasta prósentustig í vaxtamun á milli Íslands og evrusvæðisins kostar samfélagið okkar um það bil 120 milljarða króna á ári (og vaxtamunurinn er miklu meiri en bara eitt prósentustig). Það er hreinn aukakostnaður sem fjölskyldur, bændur, fyrirtæki, bæjarfélög og ríkissjóður greiða árlega, einfaldlega fyrir þau forréttindi að fá að nota íslensku krónuna. Fyrir heimilin: Að færast nær evrópsku vaxtastigi myndi létta stórkostlega á greiðslubyrði íbúðalána. Fyrir venjulega fjölskyldu getur þessi munur numið tugum eða jafnvel vel yfir hundrað þúsund krónum í hreinan sparnað í hverjum einasta mánuði. Þetta er raunveruleg kjarabót sem engir kjarasamningar geta skilað. Fyrir bændur: Íslenskur landbúnaður er gríðarlega fjármagnsfrekur. Bændur standa í milljarðafjárfestingum í tækjum, bústofni og húsnæði. Að lækka vaxtastigið á þessum stóru lánum niður í það sem gerist hjá starfsbræðrum þeirra í Evrópu myndi treysta rekstrargrundvöll búanna og létta á því fargani sem nú hvílir á íslenskri matvælaframleiðslu. Vissulega er önnur hlið á landbúnaðarmálunum, en það er engin ástæða til að ætla að ekki sé hægt að ná samningum um sérstaka styrki til íslenskra bænda, líkt og gert var í Svíþjóð og Finnlandi. Fyrir minni fyrirtæki: Lítil og meðalstór fyrirtæki eru burðarásinn í atvinnulífinu, en þau fjármagna sig á okurvöxtum í dag, sem hefur bein áhrif á allt verðlag. Lægra vaxtastig gerði þeim kleift að fjárfesta, vaxa og ráða fólk án þess að fjármagnskostnaður éti upp allan hagnaðinn um leið og Seðlabankinn krunkar í stýrivöxtunum. 2. Gjaldeyrisstöðugleiki: Kaupmáttarvörn sem virkar Íslensk heimili þekkja það af biturri reynslu að kaupmátturinn getur rýrnað yfir eina helgi ef krónan tekur smá dýfu. Vegna þess að við flytjum inn stóran hluta af neysluvarningi, eldsneyti og tækjum, smitast hvert einasta gengisfall rakleitt út í verðmiðana í búðunum. Með upptöku evru myndi þessi gengisáhætta í viðskiptum við okkar helstu viðskiptalönd hverfa. Launin sem fólk fær greidd halda sínu raunverulega virði, hvort sem það er í janúar eða ágúst. Á meðan stóru útflutningsfyrirtækin geta stundað flóknar og dýrar gengisvarnir, sitja smærri fyrirtæki og neytendur eftir óvarin. Gjaldeyrisstöðugleiki einfaldar reksturinn, skapar fyrirsjáanleika í innkaupum og skilar sér í lægra vöruverði til neytenda. 3. Minni gjaldeyrisforði: Milljarðar sem frelsast Í dag þarf Seðlabanki Íslands að liggja á risastórum gjaldeyrisforða, hundruðum milljarða króna í erlendri gjaldeyriseign, til þess eins að vera tilbúinn að grípa inn í og bjarga krónunni þegar ágjöf verður í hagkerfinu. Það er dýrt spaug að liggja með svona risastóran „varasjóð“ á lager. Slíkt fjármagn er læst inni í stað þess að nýtast í samfélagslega innviði. Með því að ganga inn í stærra og öflugra gjaldmiðlasamstarf minnkar þörfin á því að litla Ísland reki sinn eigin milljarða-öryggispúða til muna. Það losar um fjármagn fyrir ríkissjóð, sem hægt væri að nýta til að lækka opinberar skuldir, styrkja heilbrigðis- og menntakerfið, eða hreinlega til að draga úr skattheimtu á almenning. Leiðin út Verðtryggingin var viðbragð við meðfæddum göllum íslensku krónunnar. Henni verður einfaldlega ekki haggað nema með því að setja allt á annan endann innanlands, eða þá með því að taka upp annan gjaldmiðil. Að stefna að upptöku evru, að undangenginni aðild að Evrópusambandinu og fullgildum samningi, er líklega einhver besta og raunhæfasta leiðin sem við eigum til að losna við verðtrygginguna af nýjum lánum. Spurningu sem við þurfum að spyrja okkur er í raun sáraeinföld: Viljum við frekar búa áfram í umhverfi þar sem heimilin og atvinnulífið þurfa stöðugt að vera á varðbergi gagnvart næsta verðbólguskoti og verðtryggingunni, eða í umhverfi þar sem hægt er að plana framtíðina, kaupa húsnæði, standa í búskap og reka fyrirtæki með sama öryggi, sama vaxtastigi og sömu sjálfsögðu tilfinningu og nágrannar okkar í Evrópur hafa notið áratugum saman, að sjá lánin sín raunverulega lækka í hverjum einasta mánuði? Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum . Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar