Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar 8. ágúst 2026 08:33 Í ágústmánuði ár hvert gerist eitthvað einstakt í Reykjavík þegar borgin breytir um svip og verður staður þar sem hátíðahöld og samstaða fara hönd í hönd. Göturnar fyllast af litadýrð, tónlist og gleði en einnig sterkri samkennd. Það er þetta sem er svo einstakt við Hinsegin daga í Reykjavík. Hinsegin dagar eru ekki aðeins hátíð hinsegin samfélagsins heldur einnig gildanna sem eru Íslendingum svo kær: víðsýni, virðingar, reisnar og frelsis til að vera maður sjálfur. Þannig endurspegla Hinsegin dagar það samfélag sem svo mörg leggja sig fram við að byggja upp og vernda. Slagorðið í ár, „sameinumst undir regnboganum“, fangar þennan anda á öflugan hátt auk þess að endurspegla kjörorð Evrópusambandsins, „sameinuð í fjölbreytileika“. Hvort tveggja minnir okkur á að styrkur okkar felst ekki í einsleitni heldur í því að standa saman um leið og við fögnum því sem gerir okkur ólík. Jafnrétti og bann við mismunun eru meðal grunngilda Evrópusambandsins og algjör forsenda fyrir þeim opnu, lýðræðislegu samfélögum sem við viljum byggja upp. Þetta er líka hugmyndin að baki framtíðarsýn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um „jafnréttissamband“ (e. Union of Equality), þ.e. Evrópu þar sem öll geta verið þau sjálf og lifað frjáls og óhult í þeirri vitneskju að réttindi þeirra njóti verndar. Þetta felur í sér sterka og endurnýjaða skuldbindingu um jöfn réttindi hinsegin fólks. Jafnréttisáætlun ESB fyrir hinsegin fólk 2026-2030 byggir á þeim árangri sem þegar hefur náðst en um leið er brugðist við þeim áskorunum sem við glímum enn við. Í nýju stefnunni er lögð aukin áhersla á að berjast gegn ofbeldi og áreitni af völdum haturs, þar á meðal hatursorðræðu og upplýsingaóreiðu á netinu. Ekki síður mikilvæg er sú þverlæga áhersla sem lögð er á samtvinnun og samþættingu jafnréttissjónarmiða. Þetta skiptir máli vegna þess að líf fólks mótast af margs konar sjálfsmyndum og upplifunum. Árangursrík jafnréttisstefna verður að endurspegla þann veruleika. Sem fyrr eru aðgengi og inngilding kjarninn í starfi okkar. Stolt á að vera fyrir okkur öll. Þess vegna eru ESB og aðildarríki þess stolt af því að styðja Hinsegin daga í Reykjavík enn eitt árið með því að fjármagna ramp fyrir hjólastólanotendur og stuðla þannig að aðgengi fyrir öll. Með slíkum áþreifanlegum aðgerðum getum við hrint gildum okkar í framkvæmd og sýnt inngildingu í verki. Frá því á tíunda áratug síðustu aldar hafa Íslendingar sýnt gott fordæmi, enda er Ísland ávallt meðal þriggja efstu landanna á Regnbogakorti Evrópusamtaka hinsegin fólks (ILGA Europe). Þetta er afrek sem vert er að fagna en Hinsegin dagar minna okkur líka á að aldrei ætti að taka framförum sem sjálfsögðum hlut. Á tímum þegar jafnrétti og mannréttindi eiga undir högg að sækja víða um heim hafa hátíðahöld sem þessi sérstaka þýðingu. Þau staðfesta sameiginlega skuldbindingu okkar um mannlega reisn, frelsi og virðingu. Hinsegin dagar í Reykjavík gefa okkur tilefni til að fagna þeim góða árangri sem náðst hefur um leið og við höldum áfram að byggja upp öflug og réttlát samfélög án aðgreiningar – á Íslandi, um alla Evrópu og víðar. Sameinuð undir regnboganum, og undir merkjum fjölbreytileikans, áréttum við að öll eiga skilið frelsi til að lifa opinskátt, í öryggi og með stolti. Höfundur er sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. United Under the Rainbow: Equality, Inclusion and Pride Every August, Reykjavík becomes something truly special: a city where celebration and solidarity walk hand in hand. Streets fill with colour, music and joy, but also with a powerful sense of belonging. That is what makes Reykjavík Pride so remarkable. It is not only a celebration of the LGBTIQ+ community, but also of the values that Iceland holds dear — openness, dignity, respect and the freedom to be oneself. In that spirit, Pride reflects the kind of society so many people are working to build and protect. This year’s theme, “United under the rainbow”, speaks powerfully to that spirit. It also resonates deeply with the European Union’s motto, “United in diversity”. Both remind us that our strength lies not in sameness, but in standing together while embracing our differences. Equality and non-discrimination are among the European Union’s core values, and they are essential to the kind of open, democratic societies we want to build. That is also the idea behind the European Commission’s vision of a Union of Equality: a Europe where everyone can be themselves, live freely and safely, and know that their rights will be protected. This includes a strong and renewed commitment to LGBTIQ+ equality. The EU’s LGBTIQ+ Equality Strategy 2026–2030 builds on the progress already made, while responding to the challenges we continue to see today. The new strategy places stronger emphasis on combating hate-motivated violence and harassment, including online hate and disinformation. Importantly, it also maintains intersectionality and equality mainstreaming as cross-cutting principles. That matters because people’s lives are shaped by multiple identities and experiences. Effective equality policies must reflect that reality. Accessibility and inclusion must also remain at the heart of our efforts. Pride should be for everyone. That is why, once again this year, the EU and its Member States are proud to support Pride in Reykjavík through funding the ramp for wheelchair users that facilitates accessibility for all. Such practical measures are essential to turning our values into lived inclusion. Since the 1990s, Iceland has led by example, reflected in its consistent place among the top three countries on ILGA-Europe’s Rainbow Map. This is an achievement worth celebrating, but Pride also reminds us that progress should never be taken for granted. At a time when equality and human rights are facing growing pressure in many parts of the world, celebrations such as this carry special meaning. They affirm our shared commitment to dignity, freedom and respect. As we celebrate Reykjavík Pride, let us honour the progress made while continuing to build inclusive, resilient and just communities — in Iceland, across Europe and beyond. United under the rainbow, and united in diversity, we affirm that everyone deserves the freedom to live openly, safely and with pride. The author is the ambassador of the European Union to Iceland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Hinsegin Gleðigangan Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Skoðun Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun