Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 5. ágúst 2026 09:03 Undanfarnar vikur hafa fjölmargir foreldrar stigið fram og lýst reynslu sinni af samskiptum við Fæðingarorlofssjóð. Frásagnirnar eru um margt keimlíkar; löng bið, óljós svör og sú upplifun að þurfa ítrekað að sanna rétt sem foreldrar töldu skýran. Á sama tíma glíma fjölskyldur við fjárhagsáhyggjur á tímabili sem á fyrst og fremst að einkennast af öryggi og samveru með nýfæddu barni. Fæðingarorlof er ein mikilvægasta réttarbót sem íslenskt samfélag hefur byggt upp fyrir barnafjölskyldur. Tilgangurinn er að gefa foreldrum svigrúm til að sinna barni sínu án mikillar óvissu um afkomu. Þess vegna skiptir ekki aðeins máli að lögin séu góð heldur einnig að framkvæmd þeirra sé skilvirk, skýr og mannleg. Ábendingar sem ber að taka alvarlega Þetta er ekki ný umræða. Umboðsmaður Alþingis hefur áður bent á að Fæðingarorlofssjóði beri að gæta betur að leiðbeiningarskyldu sinni gagnvart þeim sem til hans leita. Ábendingar um brotalamir eiga að vera tilefni til að fara reglulega yfir verklag og kanna hvort framkvæmdin þjóni þeim tilgangi sem löggjafinn lagði upp með. Þetta á sérstaklega við þegar mál verða flóknari. Til að mynda vegna veikinda eða annarra sérstakra aðstæðna. Framkvæmdin skiptir máli Það er mikilvægt að halda til haga að starfsfólk sjóðsins sinnir mikilvægu og oft krefjandi starfi. Umræðan á því ekki að beinast að því að finna sökudólga heldur því að bæta þjónustuna. Þegar sambærilegar kvartanir berast ítrekað er eðlilegt að stjórnvöld fari yfir hvort ástæða sé til að einfalda ferla, skýra upplýsingagjöf og stytta afgreiðslutíma þar sem það er mögulegt. Traust á opinberri þjónustu byggir ekki aðeins á lagalegum réttindum heldur einnig á því hvernig fólk upplifir samskipti þegar á reynir. Foreldrar eiga að vita hvar mál þeirra eru stödd, hvaða gögn hugsanlega vantar og hvenær megi vænta niðurstöðu. Óvissa getur reynst þungbær þegar tekjuöryggi heimilisins ráðast af afgreiðslu máls. Tækifæri til úrbóta Ég tel mikilvægt að farið verði yfir framkvæmd mála hjá Fæðingarorlofssjóði í ljósi þeirrar umræðu sem nú á sér stað. Ég treysti að þau sjónarmið sem foreldrar hafa komið á framfæri, ásamt þeim ábendingum sem áður hafa komið frá Umboðsmanni Alþingis, verði nýtt til að styrkja kerfið enn frekar. Markmiðið hlýtur að vera að Fæðingarorlofssjóður veiti þá þjónustu sem foreldrar eiga rétt á og að lögbundinn stuðningur þurfi ekki að kosta baráttu. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar