Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. ágúst 2026 14:45 Friðrika Hjördís tók við sem framkvæmdastjóri viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða í ágúst 2024. Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, hefur hætt störfum sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða, umræðuvettvangi sem Ólafur Ragnar Grímsson stofnaði árið 2013 og hefur leitt síðan. „
Persónulegar fréttir: Eftir næstum þrjú æðisleg ár, hef ég ákveðið að stíga til hliðar frá hlutverki mínu sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða,“ skrifaði Friðrika í færslu á LinkedIn-síðu sinni fyrr í dag. Samkvæmt síðu hennar hefur hún starfað hjá Hringborði norðurslóða síðan í maí 2024, fyrst sem verkefnastjóri í tvo mánuði og síðan sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþingsins í um tvö ár. „Eftir því sem mikilvægi norðurslóða á alþjóðavettvangi eykst verður sífellt mikilvægara fyrir fólk frá ólíkum löndum og atvinnugreinum að koma saman, hlusta hvert á annað og skiptast á hugmyndum. Það er einmitt það sem gerir Hringborð norðurslóða að svo mikilvægum fundarstað þar sem tengsl eru byggð upp, traust skapast og dyr eru opnaðar fyrir gagnlegu samstarfi.“ Friðrika segist afar stolt af því að hafa byggt upp Viðskiptaþing Hringborðs norðurslóða síðustu ár og fylgist spennt með næsta kafla þess undir forystu fyrrverandi samstarfskonu sinnar, Matthildar Maríu Rafnsdóttur. Að lokum þakkar hún öllum þeim sem hún hefur starfað með og segist hlakka til að geta varið meiri tíma í eigin verkefnum. Hringborð Norðurslóða var stofnað árið 2013 af Ólafi Ragnari Grímssyni og öflugum hópi fólks með fjölbreytt tengsl við norðurslóðir. Tilgangur samtakanna er að vera umræðuvettvangur milli stjórnmála- og viðskiptaleiðtoga, umhverfissérfræðinga, vísindamanna, fulltrúa frumbyggja og annarra alþjóðlegra hagsmunaaðila um vandamál sem steðja að Norðurslóðum og halda samtökin árlega ráðstefnu í október. Fréttinni hefur verið breytt þar sem titill Friðriku var ekki réttur. Hún var fyrst titluð sem framkvæmdastjóri Hringborðs norðurslóða en hið rétta er að hún var framkvæmdastjóri viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða.
Vistaskipti Tímamót Hringborð norðurslóða Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira