Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar 6. ágúst 2026 07:32 Síðast fréttist af skotgröfum á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Þær grófu erlendir hermenn, sem höfðu þó þá afsökun að heimsstyrjöld geisaði. Litlar sögur fara af dvöl Íslendinga í þessum gröfum, sem líktust helst framræsluskurðum íslenskra sveita, nema ef vera skyldi einhverjir „frjálslyndir" í leit að aukavinnu. Það hefur löngum þótt bera vott um fyrirhyggju að búast til varnar þegar hætta steðjar að. Hitt er nýrra af nálinni að stjórnvöld sjálfstæðs ríkis grafi skotgrafir handa eigin þjóð, klifri ofan í þær að fyrra bragði og bíði þess svo með óþreyju að einhver láti svo lítið að ráðast á sig. Slíkt hefur fram að þessu fremur verið talið til heimsku en herkænsku. Ríkisstjórn Íslands hyggst nú leiða þjóðina inn í viðræður við Evrópusambandið. Þar munu Íslendingar, að því er ráðherrar segja í hátíðlegum tón, „verja" sjávarútveg sinn, „standa vörð um" landbúnaðinn, „gæta" auðlindanna og „halda til haga" fullveldinu. Í leiðinni eiga þeir svo að „verjast" bæði Trump og Rússum, sem hvorugur mun þó hafa frétt af fyrirætluninni. Orðalagið er athyglisvert. Menn verja það sem sótt er að. En hver sækir að okkur?Evrópusambandið hefur ekki sagt Íslandi stríð á hendur, svo vitað sé. Brussel hefur enga kröfu gert í íslenska fiskveiðilögsögu. Sambandið situr heima hjá sér, önnum kafið við eigin vandræði, sem eru ærin, og hefur satt best að segja sýnt þessari eyju í norðri hóflegan áhuga, sem er kannski það eina í málinu sem er þakkarvert? Nei, ásóknin er heimatilbúin. Það erum við sjálf sem ætlum að banka upp á í Brussel og biðja um að fá að setjast við borð þar sem við þurfum síðan, að eigin sögn, að verjast. Þetta er álíka hyggilegt og að ganga sjálfviljugur inn í ljónabúr og lýsa því hátíðlega yfir í dyrunum að maður muni verja hendur sínar. Ljónið bað ekki um heimsóknina. Það mun hins vegar taka henni fagnandi og fara sér að engu óðslega, enda hefur það nægan tíma. Reynslan af aðildarviðræðum smáríkja við sambandið er öllum kunn sem nenna að kynna sér hana. Þar er ekki samið milli jafningja. Umsóknarríkið tekur upp regluverk sambandsins, kafla fyrir kafla, og fær í staðinn tímabundnar aðlaganir sem renna út þegar hentar, sem þá hentar Brussel, vel að merkja, en ekki umsóknarríkinu. Varanlegar undanþágur í sjávarútvegi hafa aldrei fengist og munu aldrei fást, hvað sem ráðherrar segja í viðtölum hér heima, þar sem enginn í Brussel heyrir til þeirra. Sá sem sest að slíku borði í „varnarstöðu" hefur þegar tapað. Hann viðurkennir með stöðunni sjálfri að hann eigi undir högg að sækja. En Íslendingar eiga ekki undir högg að sækja. Þeir ráða sjálfir fiskimiðum sínum og orkulindum, og löggjöf sinni í þeim mæli sem EES-samningurinn leyfir, og geta staðið á þeim rétti án þess að spyrja nokkurn mann í Brussel leyfis. Staða Íslands er sterk. Hana þarf hvorki að verja né sækja; það nægir að hafa vit á að halda henni. Það er svo kaldhæðni sögunnar, sem vart verður betur á kosið, að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var ekki fyrr búin að láta moka ofan í framræsluskurði landsins í nafni „loftslagsmála“ er hún hófst handa við að grafa skotgrafir í nafni „alþjóðlegrar samvinnu og skuldbindinga". Mokstramennirnir þurfa að minnsta kosti ekki að kvíða atvinnuleysi. Spurningin sem kjósendur ættu að velta fyrir sér fram að atkvæðagreiðslunni er einföld. Hvers vegna í ósköpunum ætti fullvalda þjóð, sem enginn hefur ráðist á, að koma sér sjálfviljug í varnarstöðu og skríða ofan í skotgrafir sem hún gróf sjálf?Sá sem ekki kann svar við því ætti að minnsta kosti að hafa rænu á að segja NEI! hinn 29. ágúst. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Júlíus Valsson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar