Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar 6. ágúst 2026 13:30 Ef marka mætti samfélagsmiðla þessa dagana mætti ætla að Ísland, raunar allur hinn vestræni heimur, stæði á barmi menningarstríðs. Að samfélagið væri klofið í tvær ósættanlegar fylkingar. En þegar litið er á skoðanakannanir og rannsóknir kemur í ljós að sagan er allt önnur. Þær sýna að flest fólk hefur löngu tekið afstöðu með þeirri einföldu hugmynd að öll eigum við að njóta sömu mannréttinda og frelsis til að vera við sjálf. Það sem hefur breyst er ekki endilega afstaða almennings heldur það að hávaðinn er meiri. Hinn hávær minnihluti getur auðveldlega virst stærri en hann er þegar algóritmi samfélagsmiðla umbunar átökum fremur en samhljómi. Áður þurfti fjölda manns til að skapa þá tilfinningu að eitthvað væri stórt samfélagsmál sem fólk hefði skiptar skoðanir á. Í dag geta fáir en háværir einstaklingar málað upp þá falsmynd að allt landið logi í átökum, þegar raunin er allt önnur og fólk hefur um annað að hugsa. Í Eurobarometer-könnun Evrópusambandsins frá 2023 sögðust 72% íbúa ESB vera sammála því að hjónaband samkynja para ætti að vera leyft um alla Evrópu. Um tveir af hverjum þremur styðja jafnframt jafnan rétt lesbía, homma og tvíkynhneigðra, og svipað hlutfall styður jafnan rétt transfólks. Meira en sjö af hverjum tíu telja jafnframt að ekkert sé athugavert við ástarsamband tveggja einstaklinga af sama kyni. Þessar niðurstöður hafa styrkst enn frekar frá fyrri mælingum. Þegar horft er til Íslands verður myndin enn skýrari. Gallup-könnun sem birt var árið 2025 sýndi að 89% þeirra sem tóku afstöðu töldu Ísland vera góðan stað fyrir samkynhneigt fólk til að búa á. Meðal yngsta aldurshópsins, 18–29 ára, var hlutfallið 99%. Auðvitað þýðir þetta ekki að fordómar séu horfnir eða að ekkert sé lengur að berjast fyrir, alls ekki. Fólk verður enn fyrir mismunun og hatursorðræða er enn til staðar. En það er mikilvægt að rugla ekki saman hávaða og meirihlutaáliti. Kannski er því kominn tími til að hætta að tala um hinsegin fólk sem „lítinn minnihluta“ sem þurfi stöðugt að vera sannfæra samfélagið um eigin tilverurétt. Raunin er sú að meirihluti samfélagsins hefur þegar tekið afstöðu með mannréttindum. Þrátt fyrir það fær fámennur hópur oft meira vægi í umræðunni en stærð hans gefur tilefni til. Ekki vegna þess að hann sé stór, heldur vegna þess að hann hefur hátt. Bylur hæst í tómri tunnu. Höfundur er menningarstjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mannréttindi Gleðigangan Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar