Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar 6. ágúst 2026 15:00 Í gamla daga var fólk almennt dauðhrætt við drauga og ógnvekjandi afturgöngur sem áttu það til að ráðast á fólk og misþyrma þegar þeir náðu tökum á því. Þá héldu flestir í einfeldni sinni að þeir þyrftu einlægt að glíma við drauga eins og Írafells-Móra, Þorgeirsbola og Mývatnsskottu einkum þegar dimma tók og fólk var eitt á ferð. Á þessu var stagast við börn og fullorðna þangað til enginn þorði að hreyfa sig milli herbergja eða út fyrir hússins dyr nema í fylgd með öðrum og helst með barefli í hönd. Þannig liðu aldir í myrkum torfhúsum og hræðslan var yfirþyrmandi. Síða kom í ljós að hún var með öllu ástæðulaus enda engir draugar eða slíkar forynjur á ferð. Nú brosir fólk góðlátlega í kampinn út af því hversu auðtrúa fólk var í þá daga og auðvelt að hræða það. Nú hefur þessi draugatrú verið endurvakin með miklum tilþrifum í okkar góða samfélagi. Draugurinn ógurlegi eru samtök 27 fullvalda þjóða í Evrópu sem kalla sig Evrópusambandið og ku jafnvel vera enn hættlegri en Húsavíkur Lalli og Heiðarskotta samanlögð. Nú er verið að glíma um auðlindir þjóðarinnar sem ESB ætlar að hirða af okkur í heilu lagi og gera okkur að fátækum auðnuleysingjum enda þótt það hafi aldrei beitt slíkum yfirgangi við aðrar aðildarþjóðir – aldrei. Þannig hefur hin göfuga þjóðtrú verið endurvakin til fyrra lífs í þeirri von að hún hjálpi til við að telja fólki trú um að stórhætta sé á næsta leiti ef við samþykkjum að tala við okkar næstu nágranna um enn frekari samskipti sem hafa hingað til reynst ákaflega vel í gegnum EES-samninginn. Nei, nú er því haldið fram að þeir muni breytast í einhverskonar óargadýr sem rífa okkur á hol án þess að við vitum af og við megum síðan þola móðuharðindi af mannavöldum eins og sagt var svo smekklega fyrir þrjátíu árum þegar hinn farsæli EES-samningur var samþykktur á Alþingi. Þegar spurt er um fordæmi af hálfu ESB um slíkan yfirgang gagnvart eigin aðildarríki þá er talinu eytt og gjarnan farið að ræða hvað Íslendingar eru góðir og snjallir langt umfram aðrar þjóðir. Þannig er vitrænu tali vísað á bug en haldið áfram að fullyrða allskonar fjarstæður í anda draugatrúarinnar forðum. Er þá gjarnan vitnað í sundurslitin ummlæli einhverra á meginlandinu sem efast um að í okkar tilviki verði farið eftir þeim leikreglum sem sambandið hefur þegar mótað sjálft til dæmis um fyrirkomulag fiskveiða aðildarþjóðanna. Í átakanlegum uppgjafatón er því haldið fram að við þurfum að afhenda Brussel stjórn allra fiskveiða við Ísland enda þótt sameiginleg fiskveiðistefna ESB geri ráð fyrir að fiskstofnar verði aðeins veiddir af þeim löndum sem gert hafa það síðustu áratugina eins og hér á landi samkvæmt reglunni um hlutfallslegan stöðugleika (relative stability). Að ætla að halda sig við þá staðhæfingu að við missum alla stjórn í eigin fiskveiðilögsögu er sannarlega í anda þeirrar draugatrúar sem heltók þjóðina öldum saman. Í því sambandi er hollt að vísa til orða Davíðs Þórs Björgvinssonar fyrrum dómara við Mannréttindadómstól Evrópu: „Stærstur hluti afla í íslenskri lögsögu er veiddur úr staðbundnum fiskistofnum en ekki stofnum sem eru sameiginlegir mörgum ríkjum. Það gefur ákveðin fyrirheit um að sérlausnir kynnu að vera mögulegar fyrir Ísland við aðildarviðræður.” Hér talar virtur sérfræðingur á sviðinu af hógværð og yfirvegun um ákveðin fyrirheit um sérlausnir sem gætu uppfyllt okkar kröfur um yfirráð yfir auðlindum okkar og nýtingu þeirra þó við göngum að fullu í ESB. Að hafna slíkum viðræðum fyrirfram væri svona álíka greindarlegt og að taka upp gömlu draugatrúna og vera síðan á stöðugum flótta undan draugnum Kólumkilla og hans liði. Það getur nú varla talist gott einkenni fyrir fullvalda þjóð. Þess vegna er eðlilegt að segja já næsta höfuðdag og láta svo reyna á hvort hægt sé að gera aðildarsamning sem þjóðin tekur að lokum afstöðu til. Annað er einasta að ganga gömlu draugatrúnni aftur á hönd. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ingólfur Sverrisson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar