Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar 6. ágúst 2026 18:30 Það er búið að vera skrítið að fylgjast með ríkisstjórn undanfarið. Hún var kjörin næstum eingöngu til að lækka vexti og koma á efnahagslegum stöðugleika á ný, samt er bara búið að vera gera þveröfugt. Stýrivextir, sem voru á niðurleið hafa hækkað á ný. Verðbólgan sem var á stöðugri niðurleið er aftur farin á fulla ferð og hvað er gert? Gjaldskrár hins opinbera eru hækkaðar, embættismönnum fjölgað í stað þess að borga niður skuldir ríkisins niður í meira mæli. Það vekja upp spurningar hvað er þá verið að gera ef ekki tækla helstu kartöfluna í síðustu kosningum? Núna er verið að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í Evrópusambandsins. Þar sem vandamálin eru enn stærri og fleiri en hérlendis. Þar er atvinnuleysi meðal ungs fólks alvarlegt vandamál. Samkvæmt nýjustu spám eru enn fleiri vandamál að myndast í fjármálum sambandsins. Stóraukin útgjöld, skuldastaða sambandsríkjanna hefur aukist gífurlega og skuldir sambandsins sjálfs einnig. Þá hafa mörg fyrirtæki flutt vegna þungs regluverks og veikri samkeppnisstöðu. Evrópusambandið stendur sjálft fyrir mörgum áskorunum og stendur á villigötum. Ég vil að Ísland haldi áfram að vera samkeppnishæft þrátt fyrir smæð okkar. TIl þess þurfum við að halda öllum verkfærum fullvalda ríkis og nýta þau. Sama hvort það séu varnar-, viðskipta- eða hverskonar samningar. Nýta styrkleika og sérstöðu okkar, það eru stuttar boðleiðir, sveigjanleiki og raunveruleg tækifæri til þess að skapa velferð. Því þótt stjórnmál og hagstjórn ganga ekki alltaf upp hér, þá getum við skipt því öllu út með einni kosningu. Stjórnmálamenn eru tekin til ábyrgðar og kosnir út ef þeir standa sig ekki. Meirihluti fær umboðið til að stýra kjörtímabil en ekki umboð til frambúðar. Höfundur er (verðandi) lögfræðinemi og sat á framboðslista D-lista og óháðra í Suðurnesjabæ í nýlegum sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Það er búið að vera skrítið að fylgjast með ríkisstjórn undanfarið. Hún var kjörin næstum eingöngu til að lækka vexti og koma á efnahagslegum stöðugleika á ný, samt er bara búið að vera gera þveröfugt. Stýrivextir, sem voru á niðurleið hafa hækkað á ný. Verðbólgan sem var á stöðugri niðurleið er aftur farin á fulla ferð og hvað er gert? Gjaldskrár hins opinbera eru hækkaðar, embættismönnum fjölgað í stað þess að borga niður skuldir ríkisins niður í meira mæli. Það vekja upp spurningar hvað er þá verið að gera ef ekki tækla helstu kartöfluna í síðustu kosningum? Núna er verið að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í Evrópusambandsins. Þar sem vandamálin eru enn stærri og fleiri en hérlendis. Þar er atvinnuleysi meðal ungs fólks alvarlegt vandamál. Samkvæmt nýjustu spám eru enn fleiri vandamál að myndast í fjármálum sambandsins. Stóraukin útgjöld, skuldastaða sambandsríkjanna hefur aukist gífurlega og skuldir sambandsins sjálfs einnig. Þá hafa mörg fyrirtæki flutt vegna þungs regluverks og veikri samkeppnisstöðu. Evrópusambandið stendur sjálft fyrir mörgum áskorunum og stendur á villigötum. Ég vil að Ísland haldi áfram að vera samkeppnishæft þrátt fyrir smæð okkar. TIl þess þurfum við að halda öllum verkfærum fullvalda ríkis og nýta þau. Sama hvort það séu varnar-, viðskipta- eða hverskonar samningar. Nýta styrkleika og sérstöðu okkar, það eru stuttar boðleiðir, sveigjanleiki og raunveruleg tækifæri til þess að skapa velferð. Því þótt stjórnmál og hagstjórn ganga ekki alltaf upp hér, þá getum við skipt því öllu út með einni kosningu. Stjórnmálamenn eru tekin til ábyrgðar og kosnir út ef þeir standa sig ekki. Meirihluti fær umboðið til að stýra kjörtímabil en ekki umboð til frambúðar. Höfundur er (verðandi) lögfræðinemi og sat á framboðslista D-lista og óháðra í Suðurnesjabæ í nýlegum sveitarstjórnarkosningum.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar