Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar 6. ágúst 2026 21:02 Sjálfskipaðir alvitringar flykkjast nú á ritvöllinn og hlaðvörpin, fylla samfélagsmiðla af hinum eina sanna sannleik sem þau hafa kokkað upp undir höfuðleðrinu. Þau stofna heilu samtökin, búin að sameinast um heilaþvottinn eingöngu til að fá þig til að krossa við af eða á, nei eða já þann 29.ágúst. Kannski er það bara ég, en ég treysti ekki fólki sem er sannfært um að það viti allt betur en aðrir, að þau séu það ofboðslega gáfuð og rammskyggn að þau geti séð fyrir nákvæmlega afleiðingar eftir kosningarnar, hvort heldur við segjum já eða nei, viti nákvæmlega hvernig samingurinn muni líta út ef við segjum já og göngum til samninga, eða viti nákvæmlega hvað gerist ef við segjum nei, og að við hin, meirihlutinn, sem augljóslega þarf að mata af heilafrumum alvitringanna væru best borgið undir ægivaldi gáfnafars þeirra. Virðing fyrir lýðræðinu stendur samhliða virðingu fyrir skoðunum annarra. Ég er löngu búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa. Sú ákvörðun kemur innan frá. Góð rök hafa komið beggja vegna borðsins en það sem ég á erfitt með er þegar fólk hreinlega lýgur, samanber sú lygi að það kjósa Já við að ganga til samninga þýði Já við Evrópusambandinu, eða að við missum fullveldi ef svo færi að við gengum í Evrópusambandið. Það er hreinlega ekki rétt. Öll ríki innan Evrópusambandsins eru fullvalda. Þetta er lágtíðni, pirrandi hávaði frá fólki sem eru sömu einstaklingarnir og finna að öllu þegar kemur að hvar Ísland er statt á hverjum tíma, burt séð frá hvaða flokkur eða fólk er við völd, eða hvað er gert. Ef fólk er hrætt við ímyndaðar breytingar sem kæmu mögulega með inngöngu í Evrópusambandið ætti það kannski að hætta að tuða yfir öllu sem er verið að reyna gera hér og nú, og kannski leggja fram hjálparhönd. Gera gagn, og kannski spyrja sig afhverju það er raunverulega hrætt við að gera samning? Leitt að segja þér það kæri alvitringur, en þú veist ekki allt betur. Höfundur er verkefnastjóri á Heilbrigðisvísindasviði HÍ og meðstofnandi Revolníu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar