Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 07:01 Mér hefur undanfarið verið æ oftar hugsað til Gróu gömlu á Leiti og séð hana fyrir mér liggjandi á meltunni og strjúkandi vömbina af ánægju með allan hálf-sannleikann sem nú ræður ríkjum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Satt að segja hefur það komið mér á óvart þegar fólk sem ég veit að er bæði vel gefið og lesið, heldur blákalt fram „staðreyndum“ eins og þær séu heilagur sannleikur. Því miður er þetta á báða bóga þó ég upplifi að sannleiksástin sé síður ríkjandi hjá þeim sem ætla að segja nei. Í aðdraganda afgreiðslu Alþingis á því hvort fara ætti í þjóðaratkvæðagreiðslu var hamrað á því að þingmenn hefðu ekki nægar upplýsingar og kallað var eftir þeim endalaust. Nú vita allt í einu allir allt og rúmlega það; þeir vita hvað samningur sem ekki er byrjað að semja um mun innihalda. Á dögunum rakst ég á afar áhugaverða samantekt um þau ákvæði EES-samningsins sem Ísland hefur þegar innleitt í löggjöf sína á sviði vinnumarkaðsmála. Þar sem ég kem úr þeim geira atvinnulífsins finnst mér þetta sérlega athyglisvert. Um leið vekur það hjá mér spurningar um afstöðu forystufólks verkalýðshreyfingarinnar til hugsanlegra samningaviðræðna. Ég hafði í barnslegri einfeldni minni haldið að þessi réttindi væru fyrst og fremst afrakstur dugnaðar íslenskrar verkalýðshreyfingar en þau byggja á EES-regluverki eða hafa verið styrkt með því, samhliða íslenskri löggjöf og kjarasamningum. Rótgróin réttindi Meðal þeirra réttinda sem EES-samningurinn hefur tryggt eða styrkt eru rétturinn til að vinna, búa og stunda nám í öðrum EES-ríkjum, gagnkvæm viðurkenning starfsréttinda og sameiginlegar lágmarksreglur um vinnutíma og hvíld. Þá má einnig nefna rétt foreldra til foreldraorlofs, launavernd við gjaldþrot atvinnurekenda og vernd starfsréttinda þegar fyrirtæki skipta um eigendur. Þetta eru allt rótgróin réttindi sem fæstir myndu vilja vera án. Auk þessa hafa verið innleidd í okkar lög ákvæði um fjórtán daga rétt til að hætta við netkaup, réttur vegna gallaðrar vöru og blekkjandi söluaðferðum og vernd kaupenda pakkaferða og bætur og aðstoð vegna seinkaðs flugs. Loks má ekki gleyma Evrópska sjúkratryggingakortinu sem hefur heldur betur hjálpað mörgum á ferðum sínum innan Evrópu. Það er kominn tími til að horfa á staðreyndir og hætta að fóðra Gróu gömlu á Leiti. Evrópa logar ekki stafna á milli og hér mun smjör ekki drjúpa af hverju strái verði af inngöngu í Evrópusambandið. Mikið hefur verið talað um fullveldisframsal og jafnvel framsal dómsvalds sem er þvæla. Allt of lítið er talað um hversu hátt hlutfall íbúa til dæmist á Norðurlöndum eru ánægt með veru sína í sambandinu. Þá bíða Norðmenn spenntir eftir því hvað verður hér á landi. Ég trúi því að skynsemin muni ráða þegar kemur að atkvæðagreiðslunni svo við fáum að sjá hvað samið verður um og taka þá upplýsta ákvörðun í annarri atkvæðagreiðslu um hvort okkur hugnist þetta samstarf. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar