Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Jón Þór Stefánsson skrifar 7. ágúst 2026 19:50 Páll Óskar fyrir framan umræddan flæmingja. Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, segir að um þessar mundir fái hinsegin fólk að upplifa hvernig það var að vera hinsegin fyrir fjörutíu árum. Bakslag sem orðið hefur í réttindabaráttunni spilaði inn í val hans á hönnun vagnsins sem hann verður á í Gleðigöngunni á morgun, en þekkt er að Páll Óskar er oft á eftirminnilegum vagni.
Í kvöldfréttum Sýnar sást í flæmingjastyttu sem verður á vagni Páls á morgun. Afhverju varð flamingo-þema fyrir valinu í ár? „Vegna þess að við erum að upplifa bakslag. Ég er að sjá kommentakerfið loga af fólki sem talar eins og árið sé 1986. Það er pínu magnað að við hinsegin fólkið, hérna árið 2026, erum að fá að smakka á því hvernig var að vera hinsegin árið 1986, þar sem við vorum sögð vera ónáttúruleg, afsprengi Satans, hættuleg börnum, og ég veit ekki hvað og hvað. Hér er bleikur flamingófugl, vegna þess að bleiki liturinn finnst líka í náttúrunni,“ segir hann. Sem stendur er umræddur flæmingi, sem er gerður úr málmgrind sem er svo skreytt, enn ókláraður. „Við verðum bara fram á nótt,“ segir Páll Óskar aðspurður um hvort það muni ekki taka tíma að klára fuglinn. Hann segir dagskrána á Hinsegin dögum vera stútfulla þetta árið. „Fyrst og fremst ætlum við að sýna okkur sjálf, mæta í almannarýmið, alveg nákvæmlega eins og við erum,“ segir Páll Óskar. „Ekki vera inni á kommentakerfinu að ybba gogg, heldur hafa gaman með sjálfsvirðinguna í fararbroddi og öndvegi.“
Hinsegin Gleðigangan Mest lesið Crawford minnist sonarins Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira