Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar 9. ágúst 2026 10:02 Bolli Héðinsson, hagfræðingur, var gerður að formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands eftir að Kristrún Frostadóttir varð forsætisráðherra. Sjálfur sat ég í bankaráðinu um árabil og hef fylgst vel með málefnum Seðlabankans, þar á meðal í formennskutíð Bolla, sem ekki hefur hrifið mig. Talar niður eigin gjaldmiðil Steininn tók úr þegar ég hlustaði á viðtal við bankaráðsformanninn á Bylgjunni 30. júlí sl. Þetta viðtal fór ekki hátt, en meginerindi bankaráðsformannsins var að koma þeirri skoðun sinni á framfæri gagnvart hlustendum hversu miklu tjóni íslenska krónan hefði valdið heimilum og lífeyrissjóðum á umliðnum árum að hans mati, ásamt kostum þess leggja krónuna af, en taka þess í stað upp evru með aðild að ESB. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt neinn af forverum Bolla Héðinssonar, hvað þá aðra fyrirsvarsmenn Seðlabanka Íslands, ganga fram með sama hætti og Bolli gerði í þessu viðtali. Þar á ég við að ég hef aldrei áður heyrt neinn forystumann Seðlabanka Íslands tala eigin gjaldmiðil niður með þeim hætti sem Bolli gerði í þessu viðtali. Ábyrgð forsvarsmanna Seðlabankans Trúnaðarstörfum í seðlabanka fylgir mikil ábyrgð. Þeir sem hafa verið valdir til að gegna slíkum störfum eða til að vera í fyrirsvari fyrir seðlabanka verða rísa undir þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir. Sú ábyrgð tekur ekki einungis til hefðbundinna starfa sem þeim hafa verið falin heldur einnig, og ekki síður, til þátttöku í opinberri umræðu um málefni sem tengjast verkefnum bankans. Þeir verða m.ö.o. að sæta því að taka hagsmuni bankans fram yfir sínar persónulegu pólitísku skoðanir. Undir þessari ábyrgð hafa forverar núverandi formanns bankaráðsins risið með miklum ágætum á umliðnum árum. Núverandi bankaráðsformaður féll hins vegar illilega á því prófi í áðurnefndu viðtali. Grefur undan trausti Verkefni stjórnenda seðlabankans, þ. á m. bankaráðsformannsins, er að efla trú á bankanum sjálfum, stefnu hans og þeim verkefnum sem bankanum hafa verið falið að sinna lögum samkvæmt. Það er ekki hlutverk bankaráðsformanns að stíga fram opinberlega til þess að segja að verkefnið sé vonlaust, sérstaklega ekki þegar það er augljóslega gert í því skyni að afla þeirri skoðun hans fylgis að Íslandi eigi að ganga í ESB. Þetta virðist hafa farið framhjá bankaráðsformanninum. Nú kann einhverjum að finnast þessar athugasemdir léttvægar. En þær varða stórmál. Ef einhver tæki mark á yfirlýsingum bankaráðsformannsins og bollaleggingum hans um galla eigin gjaldmiðlils þá væri hann nú þegar búinn að valda bankanum og trúverðugleika hans verulegu tjóni. Það segir sig sjálft að yfirlýsingar af þessu tagi eru ekki einungis til þess fallnar að grafa undan trausti á gjaldmiðlinum sem seðlabankanum hefur verið treyst fyrir, heldur einnig á peningamálastjórn bankans og trausti á stofnuninni sem slíkti. Ófagleg, óásættanleg og óábyrg framganga Allt þetta veit forsætisráðherra. Hún er hagfræðingur og á að þekkja hlutverk, stöðu og verkefni seðlabankans í stjórnkerfinu. Hún á því að vita að framganga bankaráðsformannsins er hneyksli, ekki síst í ljósi stöðu hans og trúnaðarskyldu gagnvart bankanum. Framganga Bolla hlýtur gefa forsætisráðherranum tilefni til þess að gera alvarlegar athugasemdir áður en trúverðugleiki bankans býður frekari hnekki. Það sama ætti yfirstjórn Seðlabankans að gera, sem og aðrir bankaráðsmenn. Enginn þeirra getur setið undir þessari framgöngu bankaráðsformannsins. Allir sjá hversu óábyrgt það er, eitt og sér, af hálfu formanns bankaráðsins að stíga opinberlega fram, að eigin frumkvæði, í því skyni að tala niður eigin gjaldmiðil og þá stofnun sem hann er í fyrirsvari fyrir. Hvort sem fólk er sammála Bolla Héðinssyni í Evrópusambandsmálum eða ekki, þá hljóta allir að sjá að það er hvorki faglegt né ásættanlegt að formaður bankráðs Seðlabanka Íslands noti stöðu sína innan bankans í því skyni að afla persónulegum skoðunum sínum fylgis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er ekki síst ámælisvert þegar bankaráðsformaðurinn teflir með því trúverðugleika bankans í tvísýnu í þágu persónulegra skoðanna sinna. Höfundur er hæstaréttarlögmaður og átti sæti í bankaráði Seðlabanka Íslands 2017-2022. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar