Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar 11. ágúst 2026 08:31 Í frétt Vísis, „Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni“, er fjallað um þá ákvörðun Ungra Miðflokksmanna að taka ekki þátt í sameiginlegri göngu ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna í Gleðigöngunni. Þar er haft eftir formanni Ungra Miðflokksmanna að ástæðan sé meðal annars sú að hreyfingin geti ekki stutt það sem hann kallar „klámvæddar og niðrandi hugmyndir“ og í sama samhengi er rætt um trans fólk og trans börn. Ég var sjálf hluti af hópi pólitískra ungliða sem gekk saman í Gleðigöngunni á laugardaginn og mér fannst ótrúlega mikilvægt að við gætum, þrátt fyrir ólíkar pólitískar skoðanir, staðið saman í þessu. Því þetta snýst ekki um pólitíska hugmyndafræði. Þetta snýst um fólk. Fólk á rétt á að lifa, elska og gleðjast saman án þess að þurfa stöðugt að verja tilverurétt sinn fyrir öðrum. Hinsegin fólk, og hvað þá hinsegin börn, á ekki að þurfa að sitja undir því að líf þess og sjálfsmynd séu gerð að einhverju pólitísku þrætuefni sem aðrir fá að ákveða hvort þeir „styðji“ eða ekki. Og einmitt núna, þegar við sjáum réttindi hinsegin fólks sæta auknum þrýstingi víða um heim, finnst mér mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við stöndum saman. Ekki bara þegar það er auðvelt eða þegar við erum sammála um allt, heldur sérstaklega þegar réttindi fólks eru dregin í efa. Þess vegna fannst mér svo fallegt að ganga þarna með ungu fólki úr ólíkum stjórnmálaflokkum. Við þurftum ekki að vera sammála um skatta, Evrópumál eða nokkurn skapaðan hlut. Við þurftum bara að geta verið sammála um að mannréttindi hinsegin fólks séu ekki samningsatriði. Og þess vegna þykir mér ótrúlega sorglegt að Ungir Miðflokksmenn hafi ekki fundið það í sér að standa þar með okkur. Mér blöskrar enn meira að sjá orðræðuna sem notuð er til að réttlæta það. Gleðigangan snýst um sýnileika, frelsi, baráttu og gleði. Um að fólk fái að vera það sjálft, elska þann sem það elskar og gleðjast með samfélaginu sínu án skammar. Það ætti ekki að vera umdeilt. Og akkúrat núna er ekki tíminn til að stíga til hliðar. Núna þurfum við að standa saman! Höfundur er ung jafnaðarkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mannréttindi Gleðigangan Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar