Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar 11. ágúst 2026 13:31 Af hverju er Ísland að sækja um að ganga inn í sambandsríki ESB þegar við erum sjálfbjarga og sjálfráða þjóð, eyja í miðju Atlantshafi með varnarsamning við NATO? Forfeður okkar börðust í mörg hundruð ár fyrir endurheimt sjálfstæðisins, sem við höfðum afsalað okkur 1262. Okkur hefur vegnað afar vel síðan við fengum að ráða okkur sjálf, í 82 ár, og samfélagið hefur breyst úr bændasamfélagi í alþjóðlegt borgarsamfélag, eitt það ríkasta í heimi. Síðan hvenær hefur það verið löstur að vera stoltur af landi sínu og þjóð? Af hverju er fólk kallað „rasistar“, „nasistar“ og eða „hægri öfgamenn“ ef þeir vilja Íslandi allt það besta, vilja halda í menningu sína, hefðir og hylla íslenska fánann? Hefur skólakerfið brugðist börnunum okkar með því að kenna þeim ekki baráttusögu forfeðra okkar fyrir sjálfstæði landsins? Getur það verið að ungt fólk á Íslandi sé svo spillt af eftirlæti og hafi það svo gott, að því sé alveg sama þó sjálfræði okkar fari yfir til ráðamanna í Brussel? Getur verið að þau séu orðin heilaþvegin af því að allt sé betra í útlöndum og það sé löstur að vera stoltur af uppruna sínum og menningu? Síðan hvenær hefur það verið leyfilegt og sjálfsagt fyrir stjórnmálamenn að ljúga? Hvernig er hægt að ætlast til að almenningur sé heiðarlegur ef hann horfir á ráðamenn þjóðarinnar segja eitt fyrir kosningar og gera síðan þvert öfugt við það þegar í stól ráðherra er komið? Eru þá ekki komin fordæmi fyrir því að það sé í lagi að ljúga, það er engin refsing við því, það lengist bara á þér nefið. Af hverju fullyrða stjórnmálamenn að vextir og verðlag muni lækka við inngöngu í ESB, þegar þeir vita að þetta er heimatilbúið vandamál, sem þeir geta lagað sjálfir? Síðan hvenær hefur það verið löstur eða óæskilegt að hlusta á ráðleggingar og læra af reynslu þeirra sem eldri eru? Er samfélagið að ýta undir aldursfordóma með því að segja þeim eldri að sitja heima í atkvæðagreiðslunni 29.ágúst? Hvaða „pakka“ vill fólk kíkja í? Trúir það því ekki að í pakkanum eru sömu reglur fyrir öll aðildarríki ESB, en mismunandi langur aðlögunartími til að aðlagast þeim? Hvað er svona erfitt við að skilja það? Það eru engar varanlegar undanþágur. Ef þú ætlar að ganga í Frímúrararegluna þá getur þú ekki samið um sér reglur fyrir þig, þú þarft að mæta og starfa eftir reglunum. Hvernig var með 3ja orkupakkann, átti hann ekki að innihalda svo mikla neytendavernd? Hver er staðreyndin í dag? Hækkað orkuverð og fleiri milliliðir meðal annars, er það ekki? Halda sjáendur að það komi eitthvað annað upp úr pakkanum en það sem ESB segir? Það eru ákveðnar reglur sem Ísland þarf að aðlaga sig að, einungis tíminn er umsemjanlegur. Kostnaðurinn við umsóknarferlið er mikill og þeim fjármunum væri betur varið í að laga ýmislegt hér heima. Af hverju vilja Íslendingar vera í stríði við vina okkar, Rússa? Væri ekki nær fyrir Ísland, sem er herlaust land, að vera boðberar friðar? Ég skil ekki af hverju við getum ekki haldið áfram að vera stoltir, sjálfstæðir og sjálfráða Íslendingar, sem höfum náð undraverðum árangri í nýsköpun á alþjóðavettvangi, gert alþjóðlega viðskiptasamninga og verið í alþjóðlegu samstarfi án þess að spyrja ráðamenn í Brussel um leyfi. Eigum við ekki bara að halda því áfram? Höfundur er frumkvöðull. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar