Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar 11. ágúst 2026 17:03 Umhverfi íslensks landbúnaðar myndi taka verulegum breytingum við aðild að Evrópusambandinu. Um það er ekki deilt. Tollvernd félli niður á innflutningi frá öðrum aðildarríkjum. Styrki og beingreiðslur þyrfti að laga að sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB. Slíkar breytingar varða ekki aðeins hag bænda og framleiðenda heldur einnig neytenda. Tollar og verðlag Á Íslandi styðja framleiðslutengdar beingreiðslur og verndartollar við innlendar framleiðslugreinar. Almennir verðtollar á innfluttar búvörur eru að jafnaði 30% frá löndum utan ESB og 18% á vörur frá ESB. Auk þess leggjast á magntollar (kr/kg) sem nema á bilinu 200-1462 krónur fyrir hvert innflutt kíló. Gefnir eru út tollkvótar fyrir tollfrjálsan innflutning en vegna mikillar eftirspurnar bera þeir sérstakt útboðsgjald. Að ákveðnu magni af ostum undanskildu ber því allur innflutningur búvara á Íslandi sérstök gjöld. Í því skjóli starfa framleiðendur. Framlög ríkissjóðs samkvæmt búvörusamningum nema í dag um 20 milljörðum króna á ári. Langstærstur hluti fer til nautgripa- og sauðfjárræktar. Svína-, eggja- og alifuglaframleiðendur njóta ekki framleiðslustyrkja heldur einungis tollverndarinnar. Útgjöld ríkissjóðs 2018–2026 samkvæmt búvörusamningum.Heimild: Atvinnuvegaráðuneytið Ísland býr við eitt umfangsmesta stuðnings- og verndarkerfi landbúnaðar í heimi. Samkvæmt mælingum OECD er svokallað PSE-hlutfall um 47% á Íslandi. Nær helming tekna framleiðenda má þannig rekja til opinbers stuðnings eða tolla á árunum 2022–24. Sama hlutfall er um 16,4% í ESB. PSE-hlutfall OECD á Íslandi og í samanburðarlöndum. EFTA-ríkin eru í sérflokki í Evrópu með um þrisvar sinnum hærri stuðning í formi tolla og beingreiðslna. Á þessari öld hefur hlutfallið almennt farið lækkandi um allan heim, einnig á Íslandi.Heimild: OECD, Agricultural Policy Monitoring and Evaluation 2025. Kerfið á Íslandi leiðir til hærra matvælaverðs á þeim vörum sem njóta tollverndar. Það er enda tilgangur tollanna, að tryggja samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu gagnvart innfluttum vörum. Mælingar Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sýna að mjólkurvörur og egg eru um 76% dýrari á Íslandi en í sex dýrustu ríkjum ESB (Danmörk, Írland, Lúxemborg, Svíþjóð, Finnland og Belgía). Kjöt er um 62% dýrara. Heimild: Eurostat, eigin útreikningar. Heimild: Eurostat, eigin útreikningar. Með tilliti til landfræðilegrar legu, hærra launastigs og annars rekstrarkostnaðar þá er óvarlegt að áætla að verðmunur þurrkist alfarið út. En eftir því sem tollvernd minnkar og hverfur þá dregst saman munurinn á íslensku verðlagi og verðlagi í ríkjum ESB. Aukinn tollfrjáls innflutningur myndi því lækka verð, hvort sem það er við aðild að ESB eða einhliða afnámi búvörutolla. Tolla- og útboðskostnaður sem hlutfall af innflutningsverði var um 82% fyrir alifuglakjöt, 68% fyrir svínakjöt og 40% fyrir nautakjöt árið 2025, samkvæmt nýrri skýrslu Bændasamtakanna. Ólíkar búgreinar, ólík áhrif aðildar Neytendahlið jöfnunnar er mun auðveldari viðfangs en hlið bænda og framleiðenda. Líkt og á Íslandi er stuðningur ESB til framleiðenda ólíkur eftir búgreinum. En kerfin tvö eru að flestu leyti ólík. Á Íslandi er stuðningur að stórum hluta tengdur framleiðslu en í ESB ræðst hann í meiri mæli af öðrum þáttum eins og hektarafjölda, búsetu (eins og strjálbýli, harðbýli og norðlægum slóðum), ákveðnum verkefnum, loftlagsaðgerðum, fjárfestingum, nýliðun og fleira. Framleiðsla ræðst þannig frekar af eftirspurn heldur en beingreiðslum. Greiðslur innan sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar til framleiðenda koma bæði úr sameiginlegum sjóðum ESB og frá aðildarríkjunum sjálfum. Almennt er tollvernd þó mun lægri en á Íslandi (og engin gagnvart öðrum aðildarríkjum) og fremur stuðst við beinar greiðslur sem eru ekki eins markaðstruflandi. Í framkvæmd yrðu greiðslur til bænda því tvenns konar við aðild að ESB. Áfram myndi hluti beingreiðslna koma úr ríkissjóði Íslands. Þær greiðslur þyrftu að vera innan ramma sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar. Óljóst er hvort núverandi greiðslur (þ.e. um 20 milljarðar króna) rúmist þar innan, t.d. vegna harðbýlis, norðlægrar legu eða annars konar stuðnings. Framleiðslugreinar myndu síðan fá fjármagn úr sameiginlegum sjóðum ESB í formi beingreiðslna (Stoð I stefnunnar, fjármögnuð af ESB) og byggðaþróunarstyrkja (Stoð II, samfjármögnuð af ESB og ríkjunum). Til að tryggja jafnmiklar eða meiri tekjur íslenskra bænda við aðild þá þyrftu þessar greiðslur að bæta upp tap sem hlytist af verðlækkunum við afnám tolla. Þar stæðu stjórnvöld m.a. frammi fyrir ákvörðunum um hvaða framleiðslugreinar skuli aðstoða. Svín, kjúklingar og egg njóta engra beingreiðslna í dag. Í skýrslu Bændasamtakanna um íslenskan landbúnað og mögulega aðild að ESB kemur fram að Finnland beindi stuðningi til þessara greina við aðild. Í skýrslu Landbúnaðarháskólans frá 2024 segir að það láti nærri að 10. stærsta svínabúið í Danmörku gæti fullnægt allri innanlandseftirspurn á Íslandi. Svína- og kjúklingabú á Íslandi eru fá, samþjöppun er mikil og stærð búa og afurðastöðva mun minni en víða í Evrópu. Við afnám tollverndar yrði samkeppnisstaða þessara greina mun erfiðari og samkeppnisforskot innlendrar framleiðslu þyrfti í auknum mæli að byggja á gæðum, uppruna, nálægð við neytendur og öðrum sérkennum. Mikilvægi umræðunnar Breið pólitísk samstaða hefur ríkt um mikilvægi þess að styðja við innlenda landbúnaðarframleiðslu, þótt ágreiningur sé um form og umfang stuðningsins. Í nýrri skýrslu Bændasamtakanna er ekki lagt ítarmat á hvernig hagur ólíkra bænda myndi breytast í krónum og aurum talið (eða evrum og sentum) við aðild. Það er enda flókið og útreikningur háður mörgum forsendum sem aðildarviðræður myndu varpa ljósi á. En óháð mögulegri aðild að ESB er fullt tilefni til að ræða umhverfi íslenska landbúnaðarins. Neytendur kvarta undan háu verðlagi, bændur kvarta undan lágu afurðaverði, tollvernd er ein sú hæsta í heimi, raunáhrif magntolla hafa farið lækkandi samhliða verðbólgu, innflutningur hefur aukist þrátt fyrir tolla, íslenskar kýr eru mun afkastaminni en systur þeirra í Evrópu, sauðfé fer fækkandi, meðalaldur bænda fer hækkandi og núgildandi búvörusamningar voru framlengdir til ársloka 2027 án stærri ákvarðana um framtíðarskipan kerfisins sem bíða. Framtíðin er því óljós fyrir bændur, óháð mögulegum aðildarviðræðum við ESB. En ljóst má vera að mikil stefnubreyting fælist í inngöngu í ESB fyrir bændur og áhrifin yrðu verulega ólík eftir búgreinum. Höfundur er stofnandi Evrópustrauma , hugveitu um Evrópumál. Heimildir: Eurostat. Verðlag eftir vöru- og þjónustuflokkum 2025 (prc_ppp_ind_1). Bændasamtökin. 2026. Íslenskur landbúnaður og möguleg ESB-aðild. Landbúnaðarháskóli Íslands. 2024. Stuðningskerfi íslensks landbúnaðar: Markmið og leiðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hallgrímur Oddsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar