Öll lið lenda í þessu Valur Páll Eiríksson skrifar 13. ágúst 2026 09:30 Sölvi Geir segir Víkinga leita allra leiða til að snúa gengi liðsins við. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir eðlilegt að lið gangi í gegnum lægðir, líkt og Víkingar hafa gert að undanförnu. Hann leitar allra leiða til bóta þar á. Víkingur mætir svissnesku meisturunum í Thun í Víkinni klukkan 17:30 í dag í síðari leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar. Víkingar elta og er í strembinni stöðu eftir 3-0 tap í fyrri leik liðanna. „Þetta er erfið staða en ekki vonlaus staða. Það er munur þar á milli. Við þurfum að halda í vonina að við komum til baka og við ætlum að gera allt til þess að snúa þessu einvígi við,“ segir Sölvi sem vísar til einvígis Víkings við Bröndby á sama tíma í fyrra, þar sem danska liðið sneri stöðunni við eftir 3-0 sigur Víkings í fyrri leiknum hér heima. Síðustu átta leikir Víkings 14. júlí Györ 2-2 Víkingur (Meistaradeild) 18. júlí Þór 2-1 Víkingur (Besta deildin) 21. júlí Víkingur 2-1 Hapoel Beer Sheva (Meistaradeild) 24. júlí Víkingur 5-1 Keflavík (Besta deildin) 29. júlí Hapoel Beer Sheva 2-0 Víkingur (Meistaradeild) 2. ágúst ÍA 2-2 Víkingur (Besta deildin) 6. ágúst Thun 3-0 Víkingur (Evrópudeildin) 9. ágúst Víkingur 2-2 ÍBV (Besta deildin) „Við þurfum ekki að fara lengra aftur í tímann en fyrir ári síðan þar sem við erum með 3-0 forskot á móti Bröndby fyrir seinni leikinn og þeir ná því niður og snúa því við. Það er von að gera það. Við þurfum bara að hitta á okkar dag, vera með öll smáatriðin á hreinu, orkustigið rétt, stuðningsmenn á bakvið okkur og sólmyrkvann og allt saman. Það þarf allt að ganga upp en fyrst og fremst að ná í hörkuframmistöðu á móti góðu liði.“ Víkingur er í heldur óvenjulegri stöðu, sé tekið mið af árangri síðustu missera. Liðið hefur spilað fjóra leiki í röð án þess að fagna sigri í öllum keppnum og aðeins unnið tvo leiki af síðustu átta. Hvernig metur Sölvi stöðuna? „Svona gerist í fótbolta. Lið lenda í lægð, kafla sem er slæmur. Öll lið í heiminum lenda í þessu. Arsenal tapaði niður tólf stiga forskoti fyrir City á síðasta ári og PSG lenti líka í fimm leikja hrinu þar sem þeir unnu ekki neitt. Það er mjög eðlilegt fyrir lið að lenda í þessu,“ „Okkar fókus er að koma okkur upp úr þessum slæma kafla sem við erum í. Við þurfum að skoða hvað við getum gert betur og reyna að leysa úr þessu og sjá til þess að þessi kafli verði ekki lengri en hann er búinn að vera. Við fáum tækifæri á morgun til þess að breyta þessum slæma kafla í byrjun á einhverju góðu,“ segir Sölvi. Klippa: Sölvi Geir ræðir Thun, erfitt gengi, nýja leikmenn og styrk fyrir Ingvar Fleira kemur í fram í viðtalinu við Sölva sem má sjá í heild sinni í spilaranum. Leikur Víkings og Thun hefst klukkan 17:30. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland og hefst útsending klukkan 17:20. Víkingur Reykjavík Besta deild karla Evrópudeild UEFA Mest lesið Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Fótbolti Fleiri fréttir Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Sjá meira
Víkingur mætir svissnesku meisturunum í Thun í Víkinni klukkan 17:30 í dag í síðari leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar. Víkingar elta og er í strembinni stöðu eftir 3-0 tap í fyrri leik liðanna. „Þetta er erfið staða en ekki vonlaus staða. Það er munur þar á milli. Við þurfum að halda í vonina að við komum til baka og við ætlum að gera allt til þess að snúa þessu einvígi við,“ segir Sölvi sem vísar til einvígis Víkings við Bröndby á sama tíma í fyrra, þar sem danska liðið sneri stöðunni við eftir 3-0 sigur Víkings í fyrri leiknum hér heima. Síðustu átta leikir Víkings 14. júlí Györ 2-2 Víkingur (Meistaradeild) 18. júlí Þór 2-1 Víkingur (Besta deildin) 21. júlí Víkingur 2-1 Hapoel Beer Sheva (Meistaradeild) 24. júlí Víkingur 5-1 Keflavík (Besta deildin) 29. júlí Hapoel Beer Sheva 2-0 Víkingur (Meistaradeild) 2. ágúst ÍA 2-2 Víkingur (Besta deildin) 6. ágúst Thun 3-0 Víkingur (Evrópudeildin) 9. ágúst Víkingur 2-2 ÍBV (Besta deildin) „Við þurfum ekki að fara lengra aftur í tímann en fyrir ári síðan þar sem við erum með 3-0 forskot á móti Bröndby fyrir seinni leikinn og þeir ná því niður og snúa því við. Það er von að gera það. Við þurfum bara að hitta á okkar dag, vera með öll smáatriðin á hreinu, orkustigið rétt, stuðningsmenn á bakvið okkur og sólmyrkvann og allt saman. Það þarf allt að ganga upp en fyrst og fremst að ná í hörkuframmistöðu á móti góðu liði.“ Víkingur er í heldur óvenjulegri stöðu, sé tekið mið af árangri síðustu missera. Liðið hefur spilað fjóra leiki í röð án þess að fagna sigri í öllum keppnum og aðeins unnið tvo leiki af síðustu átta. Hvernig metur Sölvi stöðuna? „Svona gerist í fótbolta. Lið lenda í lægð, kafla sem er slæmur. Öll lið í heiminum lenda í þessu. Arsenal tapaði niður tólf stiga forskoti fyrir City á síðasta ári og PSG lenti líka í fimm leikja hrinu þar sem þeir unnu ekki neitt. Það er mjög eðlilegt fyrir lið að lenda í þessu,“ „Okkar fókus er að koma okkur upp úr þessum slæma kafla sem við erum í. Við þurfum að skoða hvað við getum gert betur og reyna að leysa úr þessu og sjá til þess að þessi kafli verði ekki lengri en hann er búinn að vera. Við fáum tækifæri á morgun til þess að breyta þessum slæma kafla í byrjun á einhverju góðu,“ segir Sölvi. Klippa: Sölvi Geir ræðir Thun, erfitt gengi, nýja leikmenn og styrk fyrir Ingvar Fleira kemur í fram í viðtalinu við Sölva sem má sjá í heild sinni í spilaranum. Leikur Víkings og Thun hefst klukkan 17:30. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland og hefst útsending klukkan 17:20.
Síðustu átta leikir Víkings 14. júlí Györ 2-2 Víkingur (Meistaradeild) 18. júlí Þór 2-1 Víkingur (Besta deildin) 21. júlí Víkingur 2-1 Hapoel Beer Sheva (Meistaradeild) 24. júlí Víkingur 5-1 Keflavík (Besta deildin) 29. júlí Hapoel Beer Sheva 2-0 Víkingur (Meistaradeild) 2. ágúst ÍA 2-2 Víkingur (Besta deildin) 6. ágúst Thun 3-0 Víkingur (Evrópudeildin) 9. ágúst Víkingur 2-2 ÍBV (Besta deildin)
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Evrópudeild UEFA Mest lesið Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Fótbolti Fleiri fréttir Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Sjá meira