Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar 14. ágúst 2026 15:00 Mér er sagt alla daga af íslenskum stjórnmálaflokkum allra flokka að Ísland sé best í heimi. Tökum stöðuna: Heilbrigðiskerfið er handónýtt. Menntakerfið er í mjög slæmu ástandi. Vegakerfi landsins er stórslysagildra þar sem því er ekki haldið við. Allt húsnæði sem hið opinbera á (ríki, borg og bæir) er ónýtt eða myglað. Verðgildi krónunnar hefur rýrnað gagnvart öðrum gjaldmiðlum um 99,99% síðan 1922. Við erum á topp 5 yfir hæstu skatta í heimi. Ísland er eina landið meðal siðmenntaðra þjóða sem er með verðtryggingu. Við erum með húsnæðisverð í hæstu hæðum. Matarkarfan á Íslandi er meðal þeirra allra dýrustu… Og svona mætti lengi áfram halda. Allt þetta hefur gerst á vakt íslenskra stjórnmálamanna sama hvaða flokka. Já á síðustu 100 árum hefur íslenskum stjórnmálamönnum ekki tekist að gera þessa hluti sem ég nefni hér að ofan vel, því er nú miður. Ég heyri í sífellu að við getum lagað allt sjálf og það þurfi bara að gera svona og hinsegin. Íslenskum stjórnmálamönnum hefur ekki tekist að gera neitt af þessu sem þeir tala um síðustu 100 árin. Það er nokkuð ljóst að við þurfum hjálp frá fólki sem kann til verka og hefur sögu af góðum rekstri þjóða. Með þessu er ég ekki að segja að ég vilji ganga í Evrópusambandið. Með þessu er ég að segja að ég vil breytt fyrirkomulag. Hvort það er að við skilum lyklunum heim til Noregs, fáum Kanada til að aðstoða okkur, göngum í Evrópusambandið eða bara eitthvað allt annað. Þá veit ég það eitt að mér og börnunum mínum er betur fyrir komið undir umsjón einhverra annarra en íslenskra stjórnmálamanna. Ef við sem þjóð segjum nei við því að kanna hvað Evrópusambandið hefur uppá að bjóða munu þessir stjórnmálamenn sem allt hafa keyrt í þrot á landinu okkar fagra, segja… “Þjóðin hefur hafnað breyttu fyrirkomulagi og vill hafa hlutina eins og þeir eru við þurfum enga utanaðkomandi aðstoð. Þjóðin vill ónýtt heilbrigðiskerfi, ónýta vegi, lélegt menntakerfi, ofurskatta, verðtryggingu o.s.frv” Ég vil breytt fyrirkomulag og aðstoð við að gera Ísland að landinu sem við viljum lifa í. Höfundur er þriggja barna faðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar