Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar 14. ágúst 2026 15:46 Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi. Er sjálft lýðræðið ekki í kjarna sínum rökræða út frá ólíkum sjónarhornum? Að læra af reynslunni Ég þóttist svo sem vita af fyrri kynnum, hvað Dr Baudanbacker hefði fram að færa í aðalatriðum. En ég vildi sýna manninum verðskuldaða virðingu sem fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins. Niðurstaða dómsins (Baudanbackers og meðdómenda hans Páls Hreinssonar og Norðmannsins Ola Mestad) árið 2013 batt loks endi á martröðina, sem kennd er við ICESAVE. Sá uppvakningur tröllreið allri þjóðfélagsumræðu á Íslandi á árunum eftir Hrun. Landráða- og svikabrigsl ætluðu engan endi að taka. Sú ljóta saga virðist ætla að endurtaka sig nú, rétt einu sinni enn. Eins og við inngönguna í NATÓ 1949, varnarsamninginn við BNA 1951, inngönguna í EFTA 1970 og samningana með hinum EFTA ríkjunum um EES 1989-94. Öll hafa þessi svikabrigsl reynst þessum tilræðismönnum við mannorð andstæðinga sinna til skammar og þjóðinni til skaða. Ætlum við aldrei að læra neitt af reynslunni? Enn í dag, eftir allt fjölmiðafárið, er það almannarómur að þáverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi forðað okkur frá þjóðargjaldþroti, bara með því að vísa ICESAVE-samningum ríkisstjórnarinnar 2010 og 2011 í þjóðaratkvæðagreiðslu. Um þetta hefur hann skrifað heila bók um hinn mikla lausnara „hnípinnar þjóðar í vanda“ (sjá Þjóðin og valdið, M og m 2024). Við borgum ekki skuldir óreiðumanna – og hananú! En Bretar og Hollendingar kærðu íslenska ríkið fyrir EFTA-dómstólnum. Það var niðurstaða dómsstólsins – Baudenbachers og félaga – sem hafnaði því að íslenska ríkinu (skattgreiðendum) bæri lagaleg skylda til að borga. Það væri engin ríkisábyrgð. Þetta væru skuldir einkaaðila. Og það væri engin mismunun heldur milli íslenskra og erlendra sparifjáreigenda. Báðir hópar hafi fengið sitt. M.ö.o. skuldarinn (þrotabú Landsbankans) borgaði reikninginn! Eitt er skuld – annað þakkarskuld En til þess að þetta dæmi gengi upp þurfti að lögfesta breytta forgangsröðun krafna í þrotabúið. Fyrst yrðu kröfur sparifjáreigenda greiddar en kröfur hlutabréfa- og skuldabréfa eigenda mæti afgangi. Þetta var lögfest með Neyðarlögunum. Þar með gekk dæmið upp. Um þetta er fjallað í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um „Aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008“, 7nda bindi (sjá bls. 105-119). Þar kemur fram að frumkvæði að þessum lagabreytingum hafði Ragnar Önundarson, fv. bankastjóri Iðnaðarbankans. Hann reifaði nauðsyn þessa fyrst í blaðagrein fyrir hrun og fylgdi því svo eftir við aðgerðahópinn, sem samdi lögin. Bæði Seðlabankinn og fulltrúar ráðuneytanna höfnuðu þessum hugmyndum í fyrstu. En Ragnar hafði sitt fram. Fyrir það stöndum við í mikilli þakkarskuld við hann. Þótt synjun forsetans á undirskrift laga í tvígang hafi engu breytt um endurgreiðslu til erlendra sparifjáreigenda, dugði hún til að lappa uppá orðstír forsetans, sem hafði látið nokkuð á sjá í aðdraganda Hrunsins. Þá beitti hann embætti sínu glaðbeittur sem veislustjóri útrásarvíkinganna, skreytti þá fálkaorðum og flutti ræður þeim til lofs og dýrðar sem urðu frægar að endemum fyrir rasískan hroka sem í þeim birtist. Allt er þetta best gleymt og grafið. Fyrirhyggja Að lokum þetta: Víða í riti þeirra feðgina, Carls og Lauru Baudenbacher (Iceland before the Referendum, 2026) bera höfundarnir lof á EES samningana, sem reynst hafi íslensku þjóðinni með eindæmum vel. Þau segja að „EES tryggi Íslandi fulla þátttöku í Innri markaðnum án þess að afsala sér pólitísku sjálfræði.“ Í beinu framhaldi varpa þau fram eftirfarandi spurningu: „Væri ekki raunsærra að stefna að tvískiptu samrunaferli innan Evrópusambandsins : Pólitísku sambandsríki – á la BNA – fyrir þá sem það vilja; en fjölþættu samstarfi á sviði efnahagsmála – fyrir þau ríki sem þess þurfa? Væri það ekki vænlegra í framtíðinni, fremur en að steypa öllum ríkjum Evrópu í sama stjórnarfarsmótið? (bls. 45) Þarna erum við farin að nálgast kjarnan í málflutninga þeirra. Framtíð Evrópu er mjög mikilli óvissu undirorpin nú um stundir. Höfundar bókarinnar segja að „EES is a stragetic European asset“. Mikið rétt. En það verður ekki eilíft. Ef Noregur tekur stefnu á fulla aðild að ESB í náinni framtíð, er úti um EES. Það er hafið yfir allan vafa að íslendingar einir geta ekki staðið undir EFTA stoðinni. Þess vegna er kominn tími til að kanna rækilega, hvort full aðild samræmist brýnustu þjóðarhagsmunum okkar í framtíðinni. Um það er spurningin 29. ágúst n.k. Og svarið við þeirri spurningu er JÁ. Höfundur var utanríkisráðherra Íslands 1988-1995 og hafði á hendi pólitíska verkstjórn á EES samningunum fyrir Íslands hönd, frá upphafi til loka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Jón Baldvin Hannibalsson Mest lesið Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun