Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen, Margrét Kristín Blöndal, Katrín Harðardóttir og Elsa María Blöndal skrifa 16. ágúst 2026 16:33 Sniðgönguhreyfingin BDS Ísland hefur krafist þess að dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, embætti ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóri grípi þegar í stað til aðgerða vegna veru og ágangs hugsanlegra stríðsglæpamanna sem hingað hafa sótt og sækja enn í svokallað „frí“ á milli þeirra stríðsglæpa sem þeir fremja í Palestínu, á Gaza sem og á Vesturbakkanum. Þessu ákalli Sniðgönguhreyfingarinnar er einnig beint að Alþingi Íslendinga. Meðsekt íslensku ríkisstjórnarinnar með þjóðarmorði Ísraels á palestínsku þjóðinni er hér sem áður mótmælt harðlega. Eins og komið hefur fram er íslenska þjóðin á móti þjóðarmorði og vill ekki að hún sé gerð samsek um þjóðarmorð. Enn fremur er því alfarið hafnað að meintum ísraelskum stríðsglæpamönnum sé hleypt inn í landið. Að gefnu tilefni: Ísland hefur bæði þjóðréttarlegar og lagalegar skyldur til þess að rannsaka og sækja til saka einstaklinga sem gætu hafa gerst sekir um stríðsglæpi og staddir eru á Íslandi. Í 24. tl. 1. mgr. 6. gr. almennra hegningarlaga segir: “… skal refsað eftir íslenskum hegningarlögum fyrir brot, sem þannig er háttað, er hér á eftir segir, enda þótt það sé framið utan íslenska ríkisins og án tillits til þess, hver er að því valdur:” „Á grundvelli laga um refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði. Brotið skal jafnframt teljast hópmorð, glæpur gegn mannúð, stríðsglæpur eða glæpur gegn friði samkvæmt þjóðarétti. Mál samkvæmt þessum tölulið skal einungis höfða sé sá maður sem ætlunin er að sækja til sakar staddur hér á landi.” Nýleg heimsókn meints stríðsglæpamanns til Íslands sem vakið hefur heimsathygli ber þess vitni að stjórnvöld bregðast ekki við í samræmi við skyldur sínar við alþjóðalög eða íslensk lög. Þeir hafa að undanförnu ekki aðeins farið um landið frjálsir ferða sinna heldur hafa þeir orðið uppvísir að því að áreita almenning á götum úti með meiðyrðum, myndatökum og ógnandi hegðun. Fréttir af þessu hafa borist í gegnum fréttamiðla og samfélagsmiðla. Svo langt hefur þetta fengið að ganga óáreitt að fólki berast nú morðhótanir frá aðilum í tengslum við þessa meintu stríðsglæpamenn sem hér er getið. Yfirvöldum er fullkunnugt um þetta eins og öðrum. Þau hafa ekki aðhafst, þótt þeim beri grundvallarskylda til að gæta ýtrasta öryggis borgara sinna. Dómsmálaráðherra ber að bregðast við. Þess er krafist að hún innleiði nú þegar skimun við landamæri hér og einnig þess að hún beiti sér fyrir sérstakri skimun á ísraelskum ríkisborgurum á herskyldualdri. Einnig, að dómsmálaráðherra afturkalli „Visa free travel“ fyrir ísraelska ríkisborgara á vettvangi Schengen-samstarfsins. Að embætti ríkissaksóknara gefi út leiðbeinandi reglur um rannsókn á mögulegum stríðsglæpum erlendra aðila sem ferðast til Íslands séu þær reglur ekki nú þegar fyrir hendi. Þess er krafist að Ríkislögreglustjóri ráðist í áhættumat á því hvað vera ísraelskra hermanna þýðir fyrir öryggi almennra borgara á Íslandi og gefi út viðvaranir í kjölfarið eftir því sem við á. Þessar aðgerðir eru í samræmi við þær lagalegu skyldur sem við berum samkvæmt íslenskum lögum sem og alþjóðalögum. Öryggi og velferð fólks hér og um allan heim er nú ógnað vegna glórulausra einstaklinga sem í krafti refsileysis umheimsins á Ísrael ganga um og ógna öryggi almennra borgara. Ber yfirvöldum skylda til að vernda almenning gegn þeim. Íslenskum yfirvöldum ber að lúta vilja þjóðarinnar. Íslenskum yfirvöldum ber að fara að íslenskum lögum. Íslenskum yfirvöldum ber að fara að alþjóðalögum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Margrét Kristín Blöndal Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar