Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar 17. ágúst 2026 14:30 Mikið er þrasað um ESB þessa dagana, svo mikið að maður nánast veigrar sér við að ræsa ritvinnsluforrit af því tilefni. Mikið hefur borið á umræðu um sumt og annað ekki. Það hefur einhvern veginn gleymst að helsta markmið ESB frá upphafi var að halda friðinn í álfunni og það hefur tekist mjög vel í um 70 ár. En það hefur margt annað verið gert sem breytt hefur lífshögum okkar sem erum í ESB að hluta til eða heild. Ég man eftir þeim tímum þegar maður ferðaðist um Evrópu hér á árum áður og alls staðar voru landamæraverðir spyrjandi fólk út úr, biðraðir og leiðindi. Ekki tók betra við, alls staðar þurfti að skipta gjaldeyri, seðlum eða ferðatékkum, með tilheyrandi kostnaði. Þetta ástand virðist vera draumur þeirra sem jarma um landamærin og sjálfstæða krónu. Samlíf mitt með krónunni hefur verið misjafnt í gegnum árin; ég var 19 ára þegar Ólafslög um verðtryggingu voru sett og ég hef því búið við báðar þessar krónur nánast frá því ég varð fjár míns ráðandi. Ég komst þó fljótt að því að ég réði fáu í tengslum við þær. Þegar ég fór í nám og tók námslán voru þau verðtryggð og það tók mig áratugi að greiða þau upp með miklum tilkostnaði. Ekki tók betra við þegar reynt var að koma yfir sig húsnæði. Það var hreint skelfilegt; við hjónin keyptum okkur íbúð árið 2000 og stækkuðum við okkur árið 2005. Fram að því hafði allt gengið vel og við vorum að hluta til með lán í erlendri mynt og að hluta verðtryggð. Við fengum áfram laun í íslensku krónunni. Þetta gekk líka vel fram til 2007, höfuðstóll erlendu lánanna lækkaði við hverja afborgun, vextirnir voru miklu lægri en af verðtryggða láninu og það var ánægjuleg tilbreyting að sjá fram á að þetta gæti verið um garð gengið eftir kannski 10-15 ár í mesta lagi. En þá fór allt í skrúfuna eins og við vitum, fjármálafíflin sem öllu réðu hér á landi í nokkur ár settu allt á hausinn og sendu reikninginn til okkar hinna sem vorum með lán í erlendri mynt eða verðtryggð. Gengið féll, atvinnuleysi fór upp í tólf prósent, fólk flýði til Noregs og allt í einu voru skuldirnar komnar langt upp fyrir verðmæti fasteignarinnar. Við ákváðum að bíta á jaxlinn, vinna meira og sleppa öllum lúxus. Það hafðist einhvern veginn, við vitum ekki hvernig, en ein vonin fólst í því að sótt hafði verið um aðild að ESB og þá gæti evra verið á næsta leyti og hugsanlega þar með einhver fró í þessu vaxtavíti sem okkur var búið nafni íslensku krónunnar. Þá kvað við að það tæki minnst tíu ár að fá evruna og þess vegna tæki því ekki að ganga í ESB. Nú eru liðin 17 ár og við erum enn að borga mánaðarlega hundruð þúsunda af lánum á þeim vaxtaokurskjörum sem boðið er upp í nafni íslensku krónunnar. Ég vildi að ég gæti sent reikninginn á einhverja af þeim sem komu í veg fyrir þetta á sínum tíma. Það sem mér þykir þó verra að svokallaðir Nei-sinnar vilja ekki einu sinni leyfa þjóðinni að sjá hvers konar samningur getur verið boði, það á einfaldlega að halda öllu áfram í spennitreyju okurvaxta til að þjóna hagsmunum fámennrar útgerðarklíku sem nú þegar hefur sölsað undir sig fiskveiðiauðlindina og býr sjálf í evrulandi með allt sitt á þurru. En sem faðir þykir mér þó allra verst að með þessu verður lokað fyrir möguleika barnanna minna að koma yfir sig húsnæði með manneskjulegum hætti. Þeim er sem sagt sendur reikningurinn fyrir fram og það er ekki góðs viti fyrir þær kynslóðir sem taka við. Höfundur er prófessor í þýðingafræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gauti Kristmannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar