Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar 18. ágúst 2026 10:47 Nú hefur 51 langreyður verið drepin á vertíðinni. Sala hvalkjöts til Japans er hætt og fyrir liggja birgðir í frystigeymslum sem ekki seljast. Það er erfitt að hugsa sér nöturlegri mynd af tilgangsleysi: stórhveli látin líða kvalafullan og hægfara dauðdaga á meðan kjötið safnast upp í frystigeymslum. Skýrsla Matvælastofnunar 2023 sýndi að aðeins 59% langreyða dóu samstundis, aflífun gat tekið allt að tvær klukkustundir. MAST komst að þeirri niðurstöðu að veiðarnar væru ekki í samræmi við markmið laga um velferð dýra. Dýralæknafélag Íslands sagði veiðiaðferðina ekki uppfylla ásættanleg viðmið um dýravelferð og kallaði eftir tafarlausu banni. Fagráð um velferð dýra komst jafnframt að þeirri niðurstöðu að veiðiaðferðin samræmdist ekki lögum um velferð dýra. Þrátt fyrir þetta gaf Bjarni Benediktsson leyfi til veiða í desember 2024. Veiðarnar halda áfram og ekkert hefur breyst. Eftirfylgnisviðtali Matvælastofnunar vegna veiða Hvals 8 þann 22. júní 2026 er rakin atburðarás sem sýnir enn á ný það sem fyrir liggur um veiðarnar. Langreyður var skotin fjórum sinnum og 31 mínúta leið frá fyrsta skoti þar til hún var metin lífslaus. Þrír af fjórum skutlum hæfðu skilgreint marksvæði og sprungu. Sama staðreyndin birtist okkur aftur og aftur: jafnvel við hagstæðar aðstæður, þegar miðað er rétt og sprengiskutull hæfir marksvæði, er ekki hægt að tryggja skjótan dauðdaga. Það er eitt að reyna að réttlæta veiðar sem leiða til langvarandi dauðastríðs og samræmast ekki þeim dýravelferðarsjónarmiðum sem lögin eiga að tryggja. Svo er hitt: hver er tilgangurinn með þessum veiðum? Hvalur hf. hefur misst kaupendur sína og rembist nú við að finna nýja réttlætingu fyrir áframhaldandi veiðum. Nú skal því teygja sig langt til að finna nýjan tilgang fyrir afurð komin er í markaðsklemmu. Járnpillur Nú á að mala langreyðina niður, setja hana í hylki og kynna sem byltingarkennda lausn við járnskorti. Það er heldur betur sérkennilegt að stilla umræðunni upp eins og hér hafi spennandi ný lausn á járnskorti loks fundist. Járnskortur er raunverulegt heilbrigðisvandamál sem má ekki verða að hentugu réttlætingartæki fyrir atvinnustarfsemi sem reynir í örvæntingu að finna sér nýjan tilgang. Reyðarjárn virðist þá síður vera eitthvert íslenskt hugvit heldur endurunnin hugmynd sem þegar hefur verið reynd í Japan þegar hvalkjötsmarkaðurinn hefur átt undir högg að sækja. Læknisfræðin og næringarfræðin hafa þegar gnótt úrræða til að greina, fyrirbyggja og meðhöndla járnskort. Fjöldi járnríkra matvæla, járnbættra vara og vel þekktra járnbætiefna stendur okkur til boða og ekkert þeirra krefst þess að langreyður sé skutluð og kvalin tímunum saman. Það er ekki eins og Kristján Loftsson hafi nú fundið köllun sína í baráttunni gegn járnskorti barna í þróunarríkjum. Nei, af og frá. Hér er verið að búa til nýja afsökun til þess að halda áfram að drepa hvali. Við verðum að vernda hvalina fyrir þessari þráhyggju. Þeir tilheyra þeim litla og dýrmæta hluta spendýralífs jarðar sem enn er villtur: aðeins um 4% af lífmassa allra spendýra. Restin erum við og þau dýr sem við höfum hneppt í ánauð. Höfundur er formaður Samtaka um dýravelferð og situr í stjórn Hvalavina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hvalveiðar Dýraheilbrigði Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar