Viðskipti innlent

María Klara til At­hygli

Árni Sæberg skrifar
María Klara er nýjasti liðsmaður ráðgjafarfyrirtækisins Athygli.
María Klara er nýjasti liðsmaður ráðgjafarfyrirtækisins Athygli. Athygli

María Klara Jónsdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli. Hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði samskipta, stefnumála og stjórnendaráðgjöf. Reynsla hennar af mannauðsmálum, vinnurétti, lögmennsku og stjórnun er sögð styrkja fjölbreytt ráðgjafarteymi Athygli.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að María Klara komi til Athygli frá ráðgjafarfyrirtækinu Attentus, þar sem hún hafi undanfarin fimm ár veitt ráðgjöf á sviði mannauðsmála og vinnuréttar. Áður hafi hún starfað sem héraðsdómslögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni og sem lögfræðingur endurupptökunefndar. Þar áður hafi hún  gengt starfi mannauðsstjóra flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair.

María Klara hafi lokið BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 og meistaragráðu í lögfræði frá sama skóla árið 2014. Hún hafi jafnframt aflað sér málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi.

„María Klara býr að mikilsverði reynslu úr íslenku atvinnulífi og bætist nú í öflugan hóp ráðgjafa Athygli. Við leitum sífellt leiða til að bæta þjónustu okkar með framúrskarandi fólki og mun María Klara spila þar stórt hlutverk,“ er haft eftir Kolbeini Marteinssyni, framkvæmdastjóra og ráðgjafa hjá Athygli






Fleiri fréttir

Sjá meira


×