Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. ágúst 2026 13:53 Hörður Arnarsson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir Tryggvi Þór Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Rarik til tveggja áratuga, trónir á toppi listans yfir launahæstu embættismenn, forstjóra og starfsmenn hins opinbera samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Samkvæmt blaðinu var hann með um 5,8 milljónir í laun á mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í morgun. Tryggvi Þór lét af störfum sem forstjóri Rarik árið 2022 eftir að hafa gegnt þeirri stöðu í á nítjánda ár. Alls vann hann í 42 ár hjá félaginu en í þessu samhengi ber að hafa í huga að miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá í Tekjublaðinu og því gætu falist í þeim einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrisjóði. Næst á eftir Tryggva er Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR með um 5,6 milljónir á mánuði og þar á eftir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar með 4,7 milljónir á mánuði. Í fjórða sæti er Guðmundur Ingi Ásmundsson fyrrverandi forseti Landsnets með 4,2 milljónir króna og í því fimmta er Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia með 4,1 milljón. Þorgerður Kristín er forstjóri ÁTVR.Aðsend og Vísir/Vilhelm Aðrir sem eru ofarlega á listanum og með á bilinu þrjár til fjórar milljónir króna á mánuði eru Þuríður Björg Guðnadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðssóknar hjá Nova, Einar Mathesen, Sævar Freyr Þráinsson forstjóri OR, Magnús Þór Ásmundsson núverandi forstjóri Rarik og Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets. Forstjórar og framkvæmdastjórar orkuveitna eru áberandi á listanum. 31 af efstu hundrað sætunum tilheyra starfsmönnum orkufyrirtækis og af efstu 20 er helmingurinn starfsmenn orkufyrirtækis. Forstjóri Landsvirkjunar, Landsnets, Rarik og OR eru á listanum með rúmlega fjórar milljónir á mánuði. Fyrrverandi framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun, framkvæmdastjórar viðskiptaþróunar, sölu- og þjónustu- og vatnsafls eru einnig allir í efstu tuttugu sætunum með ríflega þrjár milljónir á mánuði. Stefán Eiríksson er útvarpsstjóri.Vísir/Ívar Fannar Anna M. Björnsson upplýsingafulltrúi franska sendiráðsins var samkvæmt blaðinu með 2,8 milljónir á mánuði í laun og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri var með 2,75 milljónir á mánuði. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi ríkislögreglustjóri og núverandi sérfræðingur á skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu, var með um tvær og hálfa milljón á mánuði. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Tekjur Stjórnsýsla Kjaramál Orkumál Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Kannast ekki við virka samtalið um forsendubrestinn Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira
Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í morgun. Tryggvi Þór lét af störfum sem forstjóri Rarik árið 2022 eftir að hafa gegnt þeirri stöðu í á nítjánda ár. Alls vann hann í 42 ár hjá félaginu en í þessu samhengi ber að hafa í huga að miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá í Tekjublaðinu og því gætu falist í þeim einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrisjóði. Næst á eftir Tryggva er Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR með um 5,6 milljónir á mánuði og þar á eftir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar með 4,7 milljónir á mánuði. Í fjórða sæti er Guðmundur Ingi Ásmundsson fyrrverandi forseti Landsnets með 4,2 milljónir króna og í því fimmta er Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia með 4,1 milljón. Þorgerður Kristín er forstjóri ÁTVR.Aðsend og Vísir/Vilhelm Aðrir sem eru ofarlega á listanum og með á bilinu þrjár til fjórar milljónir króna á mánuði eru Þuríður Björg Guðnadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðssóknar hjá Nova, Einar Mathesen, Sævar Freyr Þráinsson forstjóri OR, Magnús Þór Ásmundsson núverandi forstjóri Rarik og Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets. Forstjórar og framkvæmdastjórar orkuveitna eru áberandi á listanum. 31 af efstu hundrað sætunum tilheyra starfsmönnum orkufyrirtækis og af efstu 20 er helmingurinn starfsmenn orkufyrirtækis. Forstjóri Landsvirkjunar, Landsnets, Rarik og OR eru á listanum með rúmlega fjórar milljónir á mánuði. Fyrrverandi framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun, framkvæmdastjórar viðskiptaþróunar, sölu- og þjónustu- og vatnsafls eru einnig allir í efstu tuttugu sætunum með ríflega þrjár milljónir á mánuði. Stefán Eiríksson er útvarpsstjóri.Vísir/Ívar Fannar Anna M. Björnsson upplýsingafulltrúi franska sendiráðsins var samkvæmt blaðinu með 2,8 milljónir á mánuði í laun og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri var með 2,75 milljónir á mánuði. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi ríkislögreglustjóri og núverandi sérfræðingur á skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu, var með um tvær og hálfa milljón á mánuði. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Stjórnsýsla Kjaramál Orkumál Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Kannast ekki við virka samtalið um forsendubrestinn Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira